Krabbameinslyf kláruðust á Landspítalanum 24. september 2009 12:00 Björn Zoëga forstjóri Landspítalans. MYND/Pjetur
Björn Zoëga forstjóri Landspítalans segir það gerast af og til að seinkun verði á flutningum á lyfjum milli landa sem geri það að verkum að ekki séu til lyf fyrir sjúklinga. Aðstandandi manns sem er í krabbameinsmeðferð á spítalanum hafði samband við fréttastofu og undraðist að ekki hefði verið hægt að gefa honum lyf í gær. Maðurinn fékk engar skýringar á hversvegna lyfin væru ekki til né hvenær von væri á þeim. Ekki alvarlegt vandamál segir Björn. „Við höfum lent í töfum á innflutningi á lyfjum en það hefur ekkert endilega verið meira á síðustu vikum. Þegar nóg var til af peningum gátu alveg komið upp svona tilvik," segir Björn. Aðspurður um ástæður þess að maðurinn var ekki látinn vita hvenær lyfið kæmi aftur segir Björn eðlilegar skýringar á því. „Nú þekki ég ekki þetta mál en það sem ég tel líklegast er að fólkið sem vinnur við að gefa þessi lyf hefur ekki upplýsingar um það. Í þessu má segja að fæst orð beri minnsta ábyrgð." Björn segir að gjöf krabbameinslyfja hafi ákveðinn tímaramma sem oft geti hlaupið á tveimur vikum. Hann segir flutning á lyfjum milli landa vera flókið kerfi en reynt sé að passa upp á að svona staða komi ekki upp. „Þetta er ekkert nýtt en gæti alveg aukist. Hér á landi eru auðvitað innflytjendur á lyfjum sem við eigum í viðskiptum við og ég veit ekkert hvernig þeir standa. Hingað til hafa þeir hinsvegar verið að standa sig mjög vel og við höfum átt í ágætu samstarfi við þá." Björn segir að frá því að kreppan skall á hafi Heilbrigðisráðuneytið lagt mikla áherslu á að lyf komist til landsins. Meðal annars hafi verið sérstakur aðili í Seðlabankanum sem sá um þessi mál fyrstu dagana eftir að bankarnir hrundu.
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sjá meira