Enski boltinn

Vermaelen klár í slaginn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vermaelen í leik með belgíska landsliðinu.
Vermaelen í leik með belgíska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðfest að Belginn Thomas Vermaelen verði klár í slaginn þegar að liðið mætir Everton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.

Vermaelen meiddist á vöðva aftan í læri fyrir skömmu en gat spilað með belgíska landsliðinu á miðvikudaginn án þess að finna fyrir verkjum.

„Thomas spilaði í 45 mínútur með landsliðinu og er því klár í laginn,“ sagði Wenger. Það eru þó einhver meiðsli í leikmannahópnum.

„Theo Walcott er meiddur í baki og Diabi er tæpur vegna meiðsla í nára en gæti jafnað sig í tæka tíð. Johan Djourou og Lukasz Fabianski eru líka meiddir og þá eru nokkrar vikur í þá Tomas Rosicky og Samir Nasri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×