Hundruð ábendinga vegna bótasvikara 22. júlí 2009 04:00 tryggingastofnun Hægt er að beina ábendingum um meint bótasvik úr almannatryggingakerfinu til Tryggingastofnunar. Einnig er hægt að beina ábendingum um meint bótasvik til Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra. Myndin er úr safni og tengist ekki efni fréttarinnar beint. fréttablaðið/pjetur
Velferð Vel á þriðja hundrað ábendinga um bótasvik hafa borist Vinnumálastofnun og ríkisskattstjóra (RSK) frá því átak þeirra byrjaði í maí. Markmið átaksins er aðallega að vinna gegn svartri vinnu og skattsvikum. Allar ábendingar eru skoðaðar. „Ábendingarnar varða einstaklinga og allt upp í stórfyrirtæki. Í þeim fyrirtækjum getur síðan verið um að ræða mörg störf,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Hann segir Vinnumálastofnun hafa brugðist við í mörgum tilvikum. Til dæmis með því að taka fólk af greiðsluskrá atvinnutrygginga, en töluverða úrvinnslu þarf í hvert mál, að sögn Gissurar. En telurðu að það séu margir sem stundi svarta vinnu? „Ég held að það sé töluvert mikið í samfélaginu af fólki sem vinnur svart og það vinnur gegn grunnstoðum velferðarkerfisins,“ segir Gissur. Ábendingar til Vinnumálastofnunar hafa samtals verið 201. Þær voru 55 í maí, 68 í júní og 78 í júlí, fram að gærdeginum. Gissur segir aukninguna milli mánaða aðallega stafa af auglýsingaherferð sem Vinnumálastofnun fór í til að kynna átakið. Þó er ljóst að einhverjar ábendingar varða sama einstaklinginn eða fyrirtækið. Á móti séu þó einhverjar ábendingar sem varða marga einstaklinga, segir Gissur. Ríkisskattstjóri hefur fengið um 70 ábendingar eftir að átakið byrjaði, að sögn Ólafs Jónssonar hjá eftirlitssviði ríkisskattstjóra. Meirihluti þeirra ábendinga sé þó vegna brota á skattalöggjöfinni. Allar ábendingar eru skoðaðar en sem stendur er mikið um sumarfrí hjá deildinni og því ganga málin hægar fyrir sig, samkvæmt Ólafi. En eru ekki einhverjar ábendingar sem eru uppspuni? „Af þeim sem ég hef skoðað þá virðist ekkert bera með sér annað en að þetta séu allt eðlilegar ábendingar,“ segir Ólafur. Einnig er hægt að beina ábendingum um meint bótasvik úr almannatryggingakerfinu til Tryggingastofnunar. Það átak hófst síðasta fimmtudag en upplýsingar um fjölda þeirra ábendinga fást á næstunni, samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun.vidirp@frettabladid.is
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Þjófnaður tilkynntur í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Sjá meira