Keppir á HM þrátt fyrir ævilangt bann 16. september 2009 03:45 Þótt Jón „bóndi“ Gunnarsson hafi fengið ævilangt keppnisbann hjá einu heimssambandi kraftlyftingamanna segist hann vel geta tekið þátt í heimsmeistaramóti annars heimssambands. Fréttablaðið/Valli „
Ég hef átt flekklausan feril og vil ekki tengja mitt nafn við slíkan mann,“ segir Magnús Ver Magnússon, sem kveðst munu sniðganga fyrirhugað heimsmeistaramót í kraftlyftingum vegna þátttöku aflraunamannsins Jóns Gunnarssonar. Magnús segir að Jón hafi tvisvar verið staðinn að neyslu ólöglegra lyfja og hafi verið dæmdur í ævilangt keppnisbann hjá heimssambandinu IPF, International Powerlifting Federation. Þess utan minnir hann á að lögreglan hafi fundið gríðarlegt magn steralyfja á heimili Jóns í húsleitum á árinu 2007. Jón er meðal tólf Íslendinga sem nú eru sagðir öruggir með þátttöku á heimsmeistaramóti sem hefst í Las Vegas 10. nóvember næstkomandi. Mótið er haldið af öðru heimssambandi en IPF, eða World Powerlifting Federation, sem skammstafað er WPF. Hér heima eru mismunandi félög kraftlyftingamanna sem eiga aðild að mismunandi heimssamböndum. Það er kraftlyftingafélagið Metall sem á aðild að WPF og sendir þangað áðurnefnda tólf keppendur og hugsanlega fleiri. Jón Gunnarsson, sem stendur á fimmtugu, ætlar að taka þátt í flokki 50 til 59 ára. „Ég er búinn að ræða við formann Metals og benda á að það sé ekki gott afspurnar að senda mann með slíka fortíð til keppni. Sjálfur hef ég ekki áhuga á því að vera með ef þetta á að vera svona og mun ganga úr þessu félagi ef af verður,“ segir Magnús. Um síðustu helgi sigraði Magnús á móti hér heima og kveðst vera að ná sér á strik eftir á þrálát meiðsli. Eins og kunnugt er sigraði Magnús fjórum sinnum í keppninni um titilinn sterkasti maður heims, síðast fyrir þrettán árum. Hann er nú 46 ára gamall. Jón Gunnarsson segir málflutning Magnúsar byggðan á misskilningi. Hann heyri ekki lengur undir heimssambandið IPF heldur undir WPF, sem stendur fyrir mótinu í Las Vegas. „Það er fullt af mönnum sem eru í sams konar ástandi sem eru að keppa þar. Það eru engin boð og bönn í því,“ segir Jón. Þá kveðst Jón enga trú hafa á því að Magnús geti keppt á heimsmeistaramótinu. „Hann er ekki í neinu formi þótt hann hafi verið að keppa um daginn,“ segir hann. Ekki náðist í Hermann Haraldsson, formann Metals.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira