Innlent

Traust á Jóhönnu hefur snarminnkað á hálfu ári

Jóhanna Sigurðardóttir nýtur talsvert minna trausts en áður.
Jóhanna Sigurðardóttir nýtur talsvert minna trausts en áður.

Fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon nýtur mests trausts hjá Íslendingum samkvæmt nýrri könnun frá MMR en hann mældist með 37,7 %. Næst kemur Jóhanna Sigurðardóttir með 36% en athygli vekur að 58,5% prósent Íslendinga sögðust bera mikið traust til hennar í febrúar síðastliðnum. Því er ljóst að traust á henni hefur snarminnkað eða um 22 prósent á hálfu ári.

Um 40% svarenda segjast bera lítið traust til þeirra Steingríms og Jóhönnu. Um leið hafa orðið þau tímamót í mælingum MMR á trausti til helstu leiðtoga stjórnmálanna, að forsetanum meðtöldum, að fleiri segjast bera lítið traust til þeirra allra en segjast bera mikið traust til þeirra.

Ólafur Ragnar Grímsson nýtur mikils trausts hjá 22,9% svarenda. Tæp 47,7% segjast bera lítið traust til forsetans.

Þá sögðust 19,4% bera mikið traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins og 18,3% sögðust bera mikið traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.

Á móti voru yfir helmingur sem sögðust bera lítið traust til þeirra Sigmundar og Bjarna.

Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Borgarahreyfingarinnar var sögð njóta mikils trausts af 7,4% svarenda en 63,0% kváðust bera litið traust til hennar.

Ef litið er til stuðnings við stjórnmálaflokka, má sjá að Steingrímur J. Sigfússon nýtur trausts meðal 93,2% þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna væri gengið til kosninga nú.

Jóhanna Sigurðardóttir nýtur trausts meðal 82,9% stuðningsmanna Samfylkingarinnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýtur trausts meðal 67,1% Framsóknarmanna og Bjarni Benediktsson rekur lestina en 60,1% sjálfstæðismanna treysta honum.

Könnunin var framkvæmd dagana 9.-14. september 2009 og var heildarfjöldi svarenda 909 einstaklingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×