Samningar að nást um raforkusölu frá Búðarhálsi 16. september 2009 18:46
Gengið verður frá samningum um sölu raforku Búðarhálsvirkjunar til álversins í Straumsvík á næstu dögum. Forstjóri Landsvirkjunar gerir ráð fyrir að virkjanaframkvæmdir fari á fullt næsta sumar en segir að menn verði að vera opnir fyrir öllum möguleikum til fjármögnunar.Oddvitar ríkisstjórnarinnar lýstu því yfir í gær að samstaða væri um það að ráðast í virkjun Tungnaár við Búðarháls. Friðrik Sophusson fagnar þessari stuðningsyfirlýsingu ríkisstjórnainnar, sem hann telur mjög mikilvæga.En fyrst þarf að tryggja sölu raforkunnar. Samningar við Alcan í Straumsvík eru á lokastigi þessa dagana, segir Friðrik, og vonast til að ljúka þeim. Þá er eftir sá vandi að tryggja fjármagn til framkvæmdanna, sem raunar byrjuðu fyrir átta árum. Viðræður eru þegar hafnar við íslenska lífeyrissjóði en fleira þarf til. Nefnt hefur verið að Alcan eða aðrir erlendir aðilar komi að virkjuninni.Hvort annarskonar eignarhald á virkjunni þurfi að koma til svarar Friðrik að allt komi til greina. "Ég tel að það sé svo mikilvægt að koma atvinnulífinu og efnahagslífinu af stað að við eigum að skoða allt. Allar óhefðbundnar leiðir, skoða allt, því það er svo mikið í húfi," segir hann.Búðarháls er það verkefni á lista stjórnvalda sem flest störf gæti skapað og sjá margir því fyrir sér að stórframkvæmdir þar gætu markað upphaf endurreisnarinnar. Friðrik telur að framkvæmdir gætu hafist næstu sumar en fyrst þurfi að bjóða út verkið. Hann segir reiknað með því að hægt verði að svara kaupanda orkunnar í kringum áramót hvort Landsvirkjun nái að fjármagna verkið.
Mest lesið Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Hafþór Júlíus kærður til lögreglu af fyrrverandi kærustu Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Innlent „Þetta er ekki eiturgas“ Innlent Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Innlent Kviknaði í haug af timburkurli Innlent Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Innlent Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Innlent Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Innlent Fleiri fréttir Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Fjórir kettir týndust í brunanum Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á bug Körfubolta og frjálsíþróttalöggur á Norðurlandi vestra Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Einn fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði við Tryggvagötu Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Móðan gæti orðið langvinn Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir Sjá meira