Leyndarhjúpur umlykur ríkisstjórnina 18. september 2009 17:05
Þingflokkur framsóknarmanna áréttar að ef fulltrúar Breta og Hollendinga sætta sig ekki að hluta eða í heild við lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna, fellur ábyrgðin úr gildi og þeir fyrirvarar sem við hana eru. Þetta kemur fram í lögunum sjálfum. Þingflokkurinn áréttar einnig, að einungis er hægt að breyta lögum á vettvangi Alþingis. Allar breytingar á forsendum ríkisábyrgðarinnar fella hana einnig úr gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki framsóknarmanna. „Þingflokkurinn ítrekar þá skoðun sína að farsælast sé fyrir þjóðina og lyktir þessa máls að samið sé að nýju við Breta og Hollendinga enda samningarnir óaðgengilegir og mikill vafi á að almenningi beri að greiða þessar skuldir. Þingflokkurinn telur grundvallaratriði að færustu sérfræðingar þjóðarinnar og á alþjóðavísu leiði nýjar samningaviðræður. Enn á ný einkennist málatilbúnaður ríkisstjórnarinnar af leyndarhjúp og pukri. Þingflokkur framsóknarmanna hafnar slíkum vinnubrögðum og krefst þess að meint tilboð Breta og Hollendinga verði gert opinbert nú þegar. Loks ítrekar þingflokkur framsóknarmanna mikilvægi þess að ríkisstjórn Íslands fari opinberlega fram á skýringar á þeim óeðlilega drætti sem orðið hefur á afgreiðslu málefna Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira