Hvalveiðar Íslands ekki gagnrýndar í Alþjóða Hvalveiðiráðinu Guðjón Helgason skrifar 25. júní 2009 19:30
Framtíð Alþjóða hvalveiðiráðsins hangir á bláþræði. Þær þjóðir í ráðinu sem eru andsnúnar og hlynntar hvalveiðum fá eitt ár til að ná sáttum ellegar þurfi að hugsa starfsemi ráðsins alveg upp á nýtt. Aðalfulltrúi Íslands í ráðinu segir sáttatón ríkja á aðalfundi þess. Hvalveiðar Íslendinga hafi ekki verið gagnrýndar. Fyrir ársfund ráðsins sem hófst í Portúgal á mánudaginn og lýkur á morgun tókst ekki að ná málamiðlum milli þeirra aðildarþjóða sem veiða hvali og þeirra þjóða sem eru andsnúnar slíkum veiðum. Ýmislegt hefur verið rætt, meðal annars aukin strandveiði í skiptum fyrir minni úthafsveiði á hvölum. Lykilríkjum í ráðinu, þar á meðal Íslandi, hefur verið falið að sætta ólík sjónarmið fyrir ársfundinn að ári. William Hogarth, formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins, telur að allir sjái að aðeins sé eitt ár til stefnu. Vitað sé að Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir hafi miðað við 2010. Ef ekkert sé klárað fyrir þann tíma sé málinu lokið og horfa þurfi til framtíðarskipulags ráðsins. Sue Liberman, talskona umhverfisverndarsamtakanna World Wildlife Fund, er ekki jafn viss. Þó ekki takist að sætta stríðandi fylkingar í Alþjóða hvalveiðiráðinu innan árs sé ráðið ekki dautt. Það muni haltra áfram eins og hún orðar það. Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu segir að ráðið hafi verið nær óstarfhæft um nokkurt skeið. Hann segir að hvalveiðar Íslendinga hafi ekki verið gagnrýndar á ársfundinum nú og það í samræmi við þann anda sem hafi ríkt á ársfundinum. Fundarmenn hafi reynt að fara sáttarleiðir og undirbúið það starf sem framundan sé þar sem eigi að reyna að bjarga framtíð ráðsins.
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Fleiri fréttir Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Sjá meira