Horfur hafa batnað 14. nóvember 2009 05:00 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafnar skattahækkanaleið ríkisstjórnarinnar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir skattahækkanir nauðsynlegar. fréttablaðið/valli
Útlit er fyrir að halli ríkissjóðs verði minni í ár en áður var talið. Það skýrist af lægri vaxtakostnaði en reiknað var með og minna atvinnuleysi en spáð var. Um leið stefna tekjur ríkissjóðs – einkum af virðisaukaskatti – í að vaxa meira en ráð var fyrir gert. Að þessu samantöldu gerir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sér vonir um að hægt sé að draga úr áður áformuðum skattahækkunum. Fjárþörfin hafi minnkað. Steingrímur upplýsti þetta í umræðum um skatta á Alþingi í gær. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðuna og fann skattaáformum ríkisstjórnarinnar allt til foráttu. Talsmenn annarra stjórnarandstöðuflokka voru á sama máli. Bjarni sagði fjárlagagatið, sem stoppa þyrfti í, ekki stafa af skattalækkunum undanfarinna ára heldur því að skattstofnarnir hefðu brostið. Búa þyrfti svo um hnúta að þeir skiluðu á ný sömu tekjum og fyrr. Hann ítrekaði ágæti tillögu sjálfstæðismanna um skattbreytingu í lífeyriskerfinu; með henni væri hægt að brúa fjárlagahallann. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði ríkisstjórnina ekkert hugsa um verðmætasköpun og kvað ekki hægt að vinna sig út úr kreppu með því að hækka skatta. Benti hann á skattahækkanir í Bandaríkjunum í kreppunni miklu sem hefðu haft slæm áhrif. Skattalækkanir nýrrar ríkisstjórnar hefðu hins vegar gefist vel. Þór Saari, Hreyfingunni, sagðist ekki fráhverfur skattahækkunum á einstaklinga en kolrangt væri að gera það núna; aðstæður byðu ekki upp á það. Hann vildi á hinn bóginn skattleggja atvinnugreinar sem byggðu starfsemi á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Þráinn Bertelsson sagðist geta fullyrt að venjulegt launafólk væri ekki aflögufært; leita þyrfti uppi peningana þar sem þeir væru. Helgi Hjörvar, Samfylkingunni, sagði ríkisstjórnina vera að reyna að skapa sátt um leiðir í skattamálum. Upphrópanir og heimsendaspár væru honum vonbrigði. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Viðvaranir vegna hvassviðris Veður Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Fleiri fréttir Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Sjá meira