„Allsherjar óánægja með allt“ 23. september 2009 03:15 Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, gekk frá samningum um frágang mála bankans fyrir tíu dögum. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Þorsteinn Þorsteinsson skrifuðu undir fyrir ráðuneytið.Fréttablaðið/Anton
Arnar Þór Jónsson, lögmaður 27 erlendra kröfuhafa í Glitni, gerði á fundi skilanefndar með kröfuhöfum í gær alvarlegar athugasemdir við ferli málsins allt frá því bankinn hrundi fyrir tæpu ári. Í samtali við Fréttablaðið segist Arnar Þór ekki að svo stöddu hafa umboð skjólstæðinga sinna til að ræða við fjölmiðla um málið. Þeir eru meðal annars stórir, þýskir bankar. Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, segir Arnar Þór hafa gert margvíslegar athugasemdir. „Hann lýsti óánægju sinna skjólstæðinga með ferlið frá upphafi; hvernig bönkunum var skipt, að Fjármálaeftirlitið skul hafa skipað skilanefnd og það var eiginlega sama hvað það var; hann lýsti eiginlega allsherjar óánægju með allt,“ segir Árni sem kveðst telja viðkomandi kröfuhafa í raun ekki ósátta heldur fyrst og fremst vera að reyna að styrkja stöðuna sína. Á fundinum í gær var farið yfir samninga sem skilanefndin gerði við ríkið fyrir tíu dögum um það að annaðhvort eignist kröfuhafar í Glitni 95 prósent í Íslandsbanka eða fái skuldabréf fyrir kröfum sínum. „Það var almenn ánægja með samningana,“ segir Árni sem kveður nú liggja fyrir að afla viðbótarupplýsinga frá Íslandsbanka áður en ákvörðun verði tekin á næsta fundi skilanefndar þann 29. september. - gar
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira