Sveitarstjóri býður ráðherra VG velkomna í skoðunarferð 21. september 2009 14:33 Bergur Elías Ágústsson.
Ráðherrar vinstri grænna hafa boðað friðlýsingu Gjástykkis en virðast ekki vita að sveitastjórnir á svæðinu hafi nýlega lagt til friðlýsingu á lang stærstum hluta þess og er orkuvinnsla aðeins heimil á um tveimur prósentum svæðisins samkvæmt nýlegu svæðisskipulagi. Sveitarstjóri Norðurþings býður ráðherra VG því velkomna norður til þess að kynna sér málin. Þetta segir í yfirlýsingu frá Bergi Elíasi Ágústssyni sveitarstjóra Norðurþings. Hann bendir á að Gjástykki sé ríflega 110 ferkílómetra stórt svæði sem nær frá landamerkjum Skútustaðahrepps í suðri norður að Kerlingahól í Kelduhverfi og er svæðið að mestu í Norðurþingi. „Rannsóknir hafa leitt í ljós að jarðhitasvæði Gjástykkis er um 10 km2 að stærð og er sá hluti svæðisins í sveitafélögunum Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi," segir Bergur. Að hans sögn eru helstu náttúruperlur svæðisins við Sandmúlann rétt sunnan Gjástykkis, á svæðinu norðan Hituhóla og við Hrauná suðvestan við Hrútafjöll. „Við afmörkun orkuvinnslusvæða í svæðisskipulaginu var kappkostað að forðast rask nálægt þessum náttúruperlum og sveitafélögin á svæðinu voru sammála um að aðeins mætti nýta 2% (2 km2) af þessu víðfeðma svæði til orkuvinnslu. Því hefur verið lagt til að stærsti hluti svæðisins verið friðlýstur í svæðisskipulagi," segir sveitarstjórinn. Hann bendir einnig á að helmingur orkuvinnslusvæðisins eða um 1 ferkílómetri er á nýjum hraunum sem runnu í Kröflueldum 1975-1984. Þessi hraun þekja samtals um 36 ferkílómetra og nær orkuvinnslusvæðið því einungis yfir tæp 3 prósent af nýju hraununum. „Rannsóknarholum sem nú eru í umhverfismati hefur verið valin staður á akvegi sem var ruddur í gegnum hraunið skömmu eftir Kröfluelda. Nú þegar hefur verið boruð ein 600 m djúp rannsóknarhola á þessum stað og reyndist botnhiti vera um 200°C. Nýju holunum er ætlað að kanna hita og lekt jarðlaga á 800-2500 m dýpi, segir Bergur Elías og bætir við: „Ráðherrar vinstri grænna eru velkomnir hingað norður til þess að kynna sér svæðið og sjá með eigin augum hvar fyrirhuguð orkuvinnsla mun fara fram, verði af henni."
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira