Lögmenn kanna leiðir til sátta 11. nóvember 2009 04:00 Verði skuldamálum á hendur Imoni ekki vísað frá dómi líkt og farið er fram á má gera ráð fyrir að málareksturinn teygi sig eitthvað fram eftir næsta ári. Fréttablaðið/GVA
Lögmenn taka sér þrjár vikur til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir sáttum í fimm af sex skuldamálum sem gamli Landsbankinn hefur höfðað á hendur eignarhaldsfélaginu Imoni. Málflutningur vegna frávísunarkröfu sjötta og stærsta málsins fer fram um miðjan janúar. Málin voru tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Haldið er uppi frávísunarkröfu í öllum málunum af hálfu lögmanns Imonar, en það er eignarhaldsfélag í eigu Magnúsar Ármann. Málið sem tekið verður fyrir í janúar er það langstærsta í hópnum, en þar krefur Landsbankinn Imon um yfir fimm milljarða króna. Sú skuld varð til örfáum dögum fyrir hrun bankanna í fyrra þegar Imon tók lán í Landsbankanum fyrir kaupum á um fjögurra prósenta hlut í bankanum. Lánað var gegn veði í stofnfjárbréfum Imons í Byr sparisjóði. Málin fimm sem frestað var og varða lægri upphæðir verða tekin fyrir dóm að nýju í byrjun desember þegar liggur fyrir niðurstaða viðræðna lögmanna Imons og Landsbankans. Haft var eftir Geir Gestssyni, lögmanni Imons, í frétt blaðsins fyrir helgina, að ágreiningur væri um fjárhæð krafna og um verðmæti innleystra veða.- óká
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira