Hæstiréttur mildar dóm yfir barnaníðingi 17. september 2009 16:44
Hæstiréttur Íslands mildaði þriggja ára fangelsisdóm yfir fyrrum ökukennaranum Hauki Helgasyni í dag. Hann var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember á síðasta ári fyrir brot gegn fjórum drengjum. Haukur gekkst við flestum ákæruliðunum en taldi sig ekki hafa framið lögbrot. Hæstiréttur ákvað að milda dóminn um ár þar sem brotin voru næstum fyrnd. Brotin áttu sér stað vori 1996 til nóvember 1998. Þá kenndi Haukur pilti á aldrinum 14-17 ára á skellinöðru. Í tugi skipta fróaði hann piltinum en kynferðismökin áttu sér oftast stað á heimili Hauks eða í bifreið hans í Heiðmörk. Í nokkrum tilvikum í ökutímum en einnig á ferðalagi þeirra tveggja til Skandinavíu og Þýskalands sumarið 1997 eða 1998. Á sama tímabili kenndi Haukur pilti á sama aldri á skellinöðru og síðar bifreið. Hann fróaði piltinum að jafnaði einu sinni í viku en kynferðismökin áttu sér stað á heimili Hauks í Reykjavík en einnig í ökutíma í bifreið hans í Heiðmörk. Þriðja piltinum kenndi Haukur einnig á skellinöðru og braut hann gegn blygðunarsemi hans í 2-3 skipti frá hausti 2002 til vors 2003. Brotin áttu sér stað í bílskúrum í Garðabæ og Hafnarfirði en piltinn fékk hann til þess að afklæðast og tók af honum fjölda mynda þar sem pilturinn var fáklæddur eða nakinn. Pilturinn var 15 og 16 ára þegar brotin áttu sér stað. Einnig var Haukur dæmdur fyrir að hafa fjölda annarra mynda í fórum sínum. Myndirnar voru ýmist af fyrrgreindum piltum eða fjórða piltinum. Á heimili Hauks var samtals lagt hald á 3804 ljósmyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Margar myndanna tók hann sjálfur. 83 ljósmyndir fundust í myndaalbúmi, 87 ljósmyndir á filmum sem voru framkallaðar, á minniskorti fundust 194 ljósmyndir og 3440 myndir fundust á átta geisladiskum. Dómurinn var mildaður um ár af Hæstarétti Ísland en í dómsorði segir að rannsókn lögreglu á brotum Hauks hófst ekki fyrr en nærri var fullnaður fyrningartími þeirra, svo og að hann hefur ekki áður unnið til refsingar. Af þessum ástæðum þótti hæstarétti rétt að milda dóminn.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira