Ferguson nefnir Mourinho sem mögulegan arftaka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. apríl 2009 11:29 Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að sér líkar vel við Jose Mourinho en er feginn því að þurfa ekki að ákveða hver eigi að taka við af sér þegar hann hættir. „Vonandi verð ég áfram hjá félaginu í tvö til þrjú ár til viðbótar. Hver veit hvað mun gerast á þeim tíma. Knattspyrnan vill breytast fljótt og staða knattspyrnustjórans er viðkvæm. Það er hægt að vera sá besti í heimi einn daginn og svo tapar liðið tveimur leikjum í röð og þá er það versta lið í heimi," sagði Ferguson í samtali við fréttastofu CNN. „En ég er feginn að ég þarf ekki að taka þá ákvörðun um hver eigi að taka við af mér. En viðkomandi þarf að hafa reynslu. Manchester United er mikið og stórt félag og líkist því félagi sem ég byrjaði að vinna hjá árið 1986 ekki neitt." Hann vildi ekki segja hver ætti að taka við af sér en nefndi þó nafn Jose Mourinho. „Mér líkar við Jose Mourinho. Hann er góður maður og mér semur mjög vel við hann." Ferguson sagði enn fremur að hann vill vinna fleiri Evróputitla með liðinu. Hann hefur unnið tvo slíka á löngum ferli sínum með United - tvisvar hefur liðið borið sigur úr býtum í Meistaradeild Evrópu og einu sinni í Evrópukeppni bikarhafa. „Mér finnst að félagið ætti að vinna minnst tvo Evróputitla til viðbótar. En það er erfitt. Við höfum svo oft náð í fjórðungs- eða undanúrslitin." „En ef við myndum vinna tvo Evróputitla til viðbótar myndi ég pottþétt hætta."
Mest lesið Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Isak aftur meiddur Enski boltinn Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Sjá meira