Fabregas og Eboue ósáttir með framgöngu Adebayor Ómar Þorgeirsson skrifar 18. september 2009 14:30 Emmanuel Adebayor er harðlega gagnrýndur af fyrrum liðsfélögum sínum. Nordic photos/AFP
Leikur Manchester City og Arsenal ætlar heldur betur að draga dilk á eftir sér fyrir framherjann Emmanuel Adebayor hjá City því hann virðist vera búinn að mála sig út í horn hjá fleiri aðilum en aganefnd enska knattspyrnusambandsins því fyrrum liðsfélagar hans hjá Arsenal keppast nú um að segja skoðun sína á hegðun hans í leiknum. Adebayor fékk þriggja leikja bann fyrir að traðka á hausnum á Robin van Persie og fyrirliðinn Cesc Fabregas hjá Arsenal vill meina að hann hafi einnig orðið fyrir barðinu á Adebayor í leiknum. „Adebayor átti að fá rautt spjald þegar hann tæklaði mig og ég get sýnt ykkur löppina á mér til sönnunar um hversu hættuleg tækling þetta var. Ég var bara heppinn að löppin á mér var í loftinu en ekki á vellinum þegar hann tæklaði mig því þá hefði þetta endað illa fyrir mig. Ég veit ekkert af hverju hann hagaði sér svona," segir Fabregas og miðjumaðurinn Emmanuel Eboue hjá Arsenal tekur í sama streng. „Ég skil ekkert í Adebayor því við höfum allir alltaf komið vel fram við hann. Hann varð sér í raun til skammar með framgöngu sinni og var ekki góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn með háttalagi sínu í leiknum. Ég er því mjög ánægður með að hann hafi fengið þriggja leikja bann fyrir vikið," segir Eboue.
Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira