Svakaleg fjölgun innbrota Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. september 2009 14:13 Geir Jón og aðrir lögreglumenn velta því fyrir sér hvort fjölgun innbrota tengjast kreppunni. Mynd/ Rósa.
Fjölgun innbrota á höfuðborgarsvæðinu er svakaleg, að mati Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Um 300 innbrot hafa verið tilkynnt til lögreglunnar að meðaltali á mánuði frá byrjun árs. Það jafngildir um 10 innbrotum á dag. Geir Jón segir að það hafi orðið mikil aukning innbrota síðan að bankakerfið hrundi í október í fyrra. Ekki sé hægt að fullyrða með vissu að kreppan sé ástæðan fyrir aukningunni en eðlilegt sé að menn spyrji sig þeirrar spurningar. „Við höfum spurt okkur að því," segir Geir Jón. Hann telur að aukningin í innbrotum hafi orðið allstaðar á landinu en hún sé líklegast mest á höfuðborgarsvæðinu. Geir Jón segir að lögreglan hafi gert ýmislegt til þess að vekja athygli fólks á hættuni á innbrotum. „Við erum alltaf að biðja fólk um að skilja ekki verðmæti eftir í bílunum. Við erum alltaf að biðja fólk um að hafa þetta ekki of sýnilegt í húsunum hjá sér. Við erum alltaf að biðja fólk um að ganga eins vel frá húsum sínum og hægt er. En við vitum það að ef menn ætla að brjótast inn að þá fara þeir inn," segir Geir Jón. Geir Jón segir mikið lausnarorð felast í nágrannavörslu og bendir á að tryggingafélögin og þjónustumiðstöðvar borgarinnar hafi hug á að koma með ríkari hætti að slíku fyrirkomulagi.
Mest lesið Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Innlent Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar Innlent „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Innlent Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Innlent „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ Innlent Fleiri fréttir Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Loftgæði versnandi á gosstöðvunum Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Sex spænskar orrustuþotur á leið til landsins Hafa tapað tvö hundruð milljónum króna vegna fjársvika Hafa sótt um bráðabirgðaleyfi Vill vita hvaða samningar eru í undirbúningi gagnvart ESB Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Sjá meira