Lífið

Út í kött

leiklist Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust. Mynd/Lýðveldisleikhúsið
leiklist Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust. Mynd/Lýðveldisleikhúsið

Sýningar Lýðveldisleikhússins á barnaleikritinu Út í kött! hefjast að nýju um helgina í Gerðubergi. Út í kött! er nýr dans- og söngleikur fyrir börn á öllum aldri sem var frumsýndur síðastliðið vor. Verkið er ævintýraleikur og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Skólum, leikskólum og foreldrafélögum gefst kostur á að kaupa sýningar á sérstökum afsláttarkjörum og geta þeir sent fulltrúa sína á sýningarnar um helgina í Gerðubergi til að kynna sér verkið. Sýningarnar verða í dag og á morgun og hefjast kl. 14.

Leikritið fjallar um strákinn Erp sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía er hress og hraðlygin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur á erfitt með að sætta sig við þennan gest sinn, enda snýr hún heimi hans, þar sem hetjur teiknimynda og tölvuleikja eru karlmenn, á hvolf. Með fjörugu ímyndunarafli sínu nær hún að sýna honum að tilveran þarf ekki að vera niðurnjörvuð í fyrirfram ákveðin hólf og kassa. Sögur Helgu Soffíu eru þrjú Grimms-ævintýri byggð á útgáfum Roalds Dahl og fléttast þau inn í leikverkið með tónlist, dansi og söng. Þar birtast Rauðhetta, Öskubuska, prins, úlfar og grísir en Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust og Öskubuska áttar sig á að hamingjan felst ekki í því einu að vera fótnett og fríð.

Tvö tólf ára börn fara með hlutverk Erps og Helgu Soffíu, þau Fannar Guðni Guðmundsson og Sóley Anna Benónýsdóttir, Ragnheiður Árnadóttir söngkona fer með hlutverk sögumanns, og leikararnir Finnbogi Þorkell Jónsson og Ólöf Hugrún Valdemarsdóttir fara með hlutverk geimskrímsla og ýmissa ævintýrapersóna til dæmis Rauðhettu og úlfsins og Öskubusku og prinsins. Benóný Ægisson er höfundur handrits, semur tónlistina og þýðir kvæði Roalds Dahl. Kolbrún Anna Björnsdóttir er leikstjóri, Sigríður Ásta Árnadóttir gerir búningana en Kristrún Eyjólfsdóttir leikmyndina.

Markmiðið með sýningunni er að skemmta og vekja börn og fullorðna til umhugsunar um birtingarmyndir staðalmynda í umhverfi barnanna.

Mikilvægi skapandi og gagnrýninnar hugsunar er seint ofmetið og því brýnt að börnin fái tæki og tól í hendurnar til að takast á við flóðbylgju skilaboða úr umhverfinu. Sýningin er farandsýning og með henni fylgir kennsluefni sem gefur kennurum tækifæri til frekari úrvinnslu á grundvelli leiksýningarinnar. Sýningin gæti meðal annars nýst í kennslu í íslensku, lífsleikni, leiklist og tónlist. - pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.