Umfjöllun: Agnar Bragi tryggði Selfossi sigur á Víkingum Elvar Geir Magnússon skrifar 28. júlí 2009 21:45 Sigurður Eyberg Guðlaugsson, leikmaður Selfossar, með skot að marki. Mynd/Matthías Ægisson.
Selfyssingar stigu enn eitt skrefið í átt að úrvalsdeild í kvöld þegar þeir unnu 2-1 útisigur á Víkingi Reykjavík. Fyrir leikinn höfðu Víkingar unnið fjóra leiki í röð í deildinni. Eftir úrslit kvöldsins er Selfoss með sjö stiga forystu í deildinni. Selfyssingar voru mun hættulegri í fyrri hálfleik en Víkingum gekk erfiðlega að skapa sér almennileg marktækifæri. Hinn stórefnilegi Guðmundur Þórarinsson átti fyrsta alvöru skotið en það fór naumlega framhjá Víkingsmarkinu. Sævar Þór Gíslason var ógnandi eins og oft áður í sumar og varði Magnús Þormar tvívegis virkilega vel frá honum með stuttu millibili. Kristinn Jóhannes Magnússon fékk besta færi Víkinga en skot hans var ekki nægilega kraftmikið. Staðan var markalaus í hálfleik en þegar níu mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum komust gestirnir frá Selfossi yfir. Þar var að verki Jón Guðbrandsson, fyrrum leikmaður Víkings, en hann var einn og óvaldaður og skoraði með skalla eftir sendingu Guðmundar. Víkingar voru meira með boltann eftir þetta en áfram gekk þeim erfiðlega að ógna marki gestana. Daníel Hjaltason átti ágætis skallafæri en inn vildi boltinn ekki í það skiptið. Þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af leiknum kom svo markið. Þorvaldur Sveinn Sveinsson átti fyrirgjöf á Daníel sem náði góðum skalla og jafnaði. Sigurmarkið kom á 86. mínútu en það skoraði miðvörðurinn Agnar Bragi Magnússon með skalla í kjölfarið á aukaspyrnu. Víkingar reyndu að jafna á lokamínútunum en það tókst ekki. Selfyssingar voru nálægt því að bæta þriðja markinu við en Chris Vorenkamp bjargaði á marklínu. Selfyssingar fengu öll þrjú stigin úr þessum stórleik kvöldsins í 1. deildinni. Víkingur - Selfoss 1-20-1 Jón Guðbrandsson (54.) 1-1 Daníel Hjaltason (79.) 1-2 Agnar Bragi Magnússon (86.)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Sjá meira