Regnvatn leitt inn á vatnsverndarsvæði 24. nóvember 2009 04:30 hólmsá Samkvæmt tillögunum á að veita ofanvatni af iðnaðarsvæði í settjarnir þar sem það verður hreinsað og leitt þaðan út í Hólmsá.fréttablaðið/valli
Vatni af götum fyrirhugaðs iðnaðarhverfis á Hólmsheiði verður veitt úr settjörnum í Hólmsá, samkvæmt deiliskipulagsbreytingu sem nú er í kynningu. Hólmsáin rennur í Elliðavatn og vatnið berst með Elliðaám til sjávar. Framkvæmdastjórn um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu telur þetta ekki vænlegasta umhverfiskostinn, en slíkt er gefið í skyn í greinargerð með tillögunni. Bent er á að Hólmsá hefur verið vöktuð á árinu 2009 og niðurstöður mælinga benda til að hún uppfylli skilyrði A-flokks, sem þýðir ósnortið vatn. Stefnt sé að því að halda þeim flokki. Hólmsheiðin er á fjarsvæði B innan vatnsverndarsvæðis. Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis, situr í framkvæmdastjórninni. Hann segir að verið sé að losa ofanvatn, hugsanlega mengað, frá fjarsvæði vatnsverndarsvæðis inn á grannsvæði. „Með þessu er verið að auka hættuna á mengun og eðlilegt er að framkvæmdastjórnin vilji láta skoða aðra kosti, eins og Rauðavatn. Það hefur ekki verið skoðað.“ Í bókun framkvæmdastjórnarinnar frá því í apríl er einmitt bent á nauðsyn þess að skoða aðrar lausnir af alvöru, til dæmis að losa í Rauðavatn sem er utan vatnsverndarsvæðisins. Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Reykjavíkur, segir þá lausn sem lögð sé til ekki endilega vera þá heppilegustu. Vel megi gera sér í hugarlund að mörk vatnsverndarsvæða breytist í framtíðinni og þá gæti Hólmsheiðin staðið utan vatnsverndarsvæða. Þá sé óheppilegt að búa við kerfi sem veiti ofanvatni af iðnaðarhverfi utan vatnsverndar og inn á vatnsverndarsvæði. Gísli Marteinn segir málið hafa verið á borði heilbrigðisnefndar og skipulagið hafi verið unnið í góðri samvinnu við Heilbrigðiseftirlit og þá sem sinni vatnsvernd á svæðinu. Gísli segir ekki útilokað að aðrir kostir verði skoðaðir. „Heilbrigðiseftirlitið hefur hvatt menn til að nýta tímann sem kreppan gefur okkur, áður en þessu verður endanlega lokað, og skoða hvort fara megi aðrar leiðir með vatnið.“kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira