Vilja ábyrgð lengda um allt að sextán ár 18. september 2009 06:30
Bretar og Hollendingar hafna fyrirvara um að ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna gildi ekki nema til ársins 2024 óháð því hvað þá stendur eftir af skuldinni. Heimildir Fréttablaðsins herma að þjóðirnar geri kröfu um að ákvæðinu verði breytt þannig að ríkisábyrgðin gildi til ársins 2030, og jafnvel sé þá mögulegt að framlengja hana þá um allt að tíu ár. Samkvæmt heimildum blaðsins er þessi krafa Breta og Hollendinga túlkuð innan stjórnkerfisins sem ótvírætt merki um að þjóðirnar vilji að Ísland greiði hverja krónu sem Icesave-málið kemur til með að kosta. Einnig að Bretar og Hollendingar vilji halda óbreyttum vöxtum á þeim eftirstöðvum lánsins sem kunna að standa eftir árið 2024, en þær gætu numið gríðarlegum fjárhæðum. Eins og þekkt er hafa Íslendingar gengist undir að greiða 5,55 prósent vexti af láni Breta og Hollendinga og það sem stendur eftir af því eftir sjö ár. Greiðsluna skal inna af hendi á árunum 2016 til 2024. Alls er óvíst hversu há þessi upphæð verður enda er það háð verðbólgu, gengi krónunnar og ekki síst hversu mikið fæst fyrir eignir Landsbankans og gengur upp í höfuðstól skuldarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vildu lítið sem ekkert segja fjölmiðlum í gær. Þjóðirnar hefðu farið fram á að upplýsingarnar yrðu meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Kom þó fram í máli þeirra að hugmyndirnar feli ekki í sér „afslátt" af fyrirvörum Íslands. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sendi frá sér ályktun í gærkvöldi. Þar segir að höfnun Breta og Hollendinga á fyrirvörum Alþingis feli í sér að ríkisábyrgð vegna Icesave taki ekki gildi. Eins að ríkisstjórnin hafi ekki heimild til að víkja frá þeim skýru fyrirvörum sem gildandi lög kveða á um.
Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Sjá meira