481 svínainflúensutilfelli í 11 löndum 1. maí 2009 12:06
Staðfestum tilvikum svínainflúensu í heiminum fjölgar áfram. Þau voru alls 481 í morgun, þar af 312 í Mexíkó. Alls hafa þrettán látist úr veikinni þar af tólf í Mexíkó og einn í Bandaríkjunum. Þetta eru nýjustu upplýsingar Sóttvarnastofnunar Evrópu og er Alþjóðaheilbrigðisstofnunin áfram með viðbúnað sinn á fimmta hættustigi af sex. Í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra kemur fram að Sóttvarnastofnun Evrópu hefur ráðið fólki frá því að ferðast til Mexíkó að nauðsynjalausu en ekki hefur verið mælt með öðrum ferðatakmörkunum. Fólki, sem verður vart sjúkdómseinkenna í kjölfar ferðalaga erlendis, er ráðlagt að leita aðstoðar heilbrigðisyfirvalda heima fyrir. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir enn fremur í tilkynningu í morgun að því fylgi engin smithætta að borða svínakjöt eða svínaafurðir ef vel er steikt eða soðið. Á samráðsfundi sóttvarnarlæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í morgun kom meðal annars fram eftirfarandi: Á Íslandi hefur enginn verið greindur með svínainflúensu og enginn verið lagður inn á Landspítala með grun um svínainflúensu. Viðbúnaður er óbreyttur hér á landi þ.e. enn á hættustigi. Haft hefur verið samband við viðbragðsaðila samkvæmt viðbragðsáætlun en ekki er ástæða til frekari aðgerða að sinni. Veirulyfjum hefur verið dreift til heilbrigðisstofnana en læknar ávísa lyfjum til sjúklinga sem taldir eru líklegir að vera með svínainflúensu. Hlífðarbúnaði hefur verið dreift á sóttvarnasvæði landsins og er til taks fyrir heilbrigðisstarfsmenn og aðrar öryggisstéttir, ef á þarf að halda. Skipaður hefur verið viðbragðshópur ráðuneyta og ákveðið að hvert ráðuneyti geri áætlun um hvernig brugðist skuli við inflúensufaraldri til að tryggja að starfsemin raskist ekki. Unnið er að því að koma á rafrænni skráningu inflúensutilfella hérlendis til að hraða upplýsingamiðlun í heilbrigðiskerfinu þannig að yfirsýn um stöðuna sé sem skýrust á hverjum tíma. Prentaðar hafa verið upplýsingar og leiðbeiningar á íslensku og ensku sem flugrekstraraðilar á Keflavíkurflugvelli afhenda komufarþegum. Þar eru farþegar hvattir til að leita til heilbrigðisþjónustunnar ef þeir finna fyrir inflúensueinkennum. Ætlunin er að dreifa hliðstæðum upplýsingum á öðrum flugvöllum, þar sem millilandafarþegar fara um, og við komu Norrænu til Seyðisfjarðar. Leiðbeiningar hafa sömuleiðis verið gerðar fyrir áhafnir flugvéla í millilandaflugi. Ekki er talin ástæða fyrir flugliða að bera andlitsgrímur nema þegar þeir annast veikt fólk með hita, hósta eða nefrennsli. Ef farþegi er með slík einkenni er mælt með því að hann beri grímu fyrir vitum. Hvernig á að verjast svínainflúensu? Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir árétta að ekki hefur verið sýnt fram á að andlitsgrímur fyrir hinn almenna borgara geri gagn til að verjast svínainflúensu. Andlitsgrímur eru hins vegar gagnlegar heilbrigðisstarfsmönnum sem annast sjúklinga og geta minnkað smithættu ef sýktur einstaklingur ber slíka grímu. Handþvottur og notkun handspritts er áhrifarík aðgerð til að minnka hættu á smiti og á þessu stigi er ekki talin ástæða til að ráðleggja fólki að forðast umgang við annað fólk. Notkun veirulyfja er einungis ráðlögð sjúklingum sem læknar telja líklegt að séu með svínainflúensu og fá sjúklingar lyfin afhent á heilsugæslustöð og/eða sjúkrahúsi. Fyrirbyggjandi notkun lyfjanna er ekki ráðlögð að sinni og einstaklingum er ekki ráðlagt að birgja sig upp af lyfjum heima. Annað stigÞriðja stigFjórða stigFimmta stig
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Sjá meira