Innlent

Fjórir nýir þingmenn formenn

Nýr forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, kallaði eftir tilnefningu allra flokka í vinnuhóp til að endurskoða starf þingsins í ræðu sinni á Alþingi í gær. „Við viljum vinna áfram í því að gera Alþingi að fjölskylduvænum vinnustað, til að vinnulag verði eins og hjá öðrum í þjóðfélaginu," segir Ásta Ragnheiður.

Skipað var í fastanefndir þingsins í gær og í tólf fastanefndum, utan forsætisnefndar, eru þingmenn Samfylkingar og Vinstri grænna með formennsku í sex nefndum hver flokkur. Þá eru sex konur og sex karlar formenn nefnda. Guðbjartur Hannesson verður formaður fjárlaganefndar og Árni Þór Sigurðsson formaður utanríkis­nefndar.

Fjórir nýliðar fá að spreyta sig á nefndarformennsku. Fyrir Samfylkingu verður Skúli Helgason formaður iðnaðarnefndar og Oddný Harðardóttir formaður menntamálanefndar. Fyrir Vinstri græn verður Lilja Mósesdóttir formaður félags- og tryggingamálanefndar og Björn Valur Gíslason formaður samgöngunefndar.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, verða í utanríkismálanefnd. Borgarahreyfingin mun eiga fulltrúa í öllum nefndum, auk þess að eiga áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×