Íslenski boltinn

Jónas Guðni: Frábær karakter

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jónas Guðni Sævarsson.
Jónas Guðni Sævarsson.

„Þetta var hörkugóður leikur og skemmtilegur áhorfs. Áhorfendur létu vel í sér heyra og það var frábær stemning, bæði út á vellinum og uppi í stúku," sagði Jónas Guðni Sævarsson, fyrirliði KR, eftir sigurinn dramatíska á Breiðabliki í kvöld.

Breiðablik hafði tveggja marka forystu í hálfleik en í þeim síðari skoruðu KR-ingar þrívegis og tryggðu sér sigurinn. Sigurmarkið kom í uppbótartíma.

„Ég vissi ekki alveg hvað var í gangi þegar við lentum tveimur mörkum undir eftir um fimmtán mínútur. Það var fín stemning í leikmönnum fyrir leik en spennustigið var greinilega ekki alveg rétt og við vorum á hælunum. Blikarnir sundurspiluðu okkur á miðsvæðinu," sagði Jónas.

„Við ákváðum að girða okkur í brók í hálfleik og mæta sterkir. Við gerðum það, við höfðum trú á þessu allan tímann. Við skoruðum snemma og opnuðum leikinn. Þetta var frábær karakter og frábær sigur fyrir okkur. Þrátt fyrir að hafa misnotað víti þá gáfust menn ekki upp."

„Eftir að hafa komist í 2-0 ætluðu Blikar bara að sigla þessu í höfn en við vorum á öðru máli," sagði Jónas Guðni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×