Íslenski boltinn

Ólafur: Fáránlegt að tapa þessum leik

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ólafur Kristjánsson.
Ólafur Kristjánsson.

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum þungur á brún eftir leikinn í kvöld. Eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik þá fékk liðið á sig þrjú mörk í þeim síðari.

„Þegar við vorum komnir tveimur mörkum yfir virtust menn hætta að þora að spila. Við töluðum um í hálfleik að koma inn í seinni hálfleikinn og hreyfa okkur og láta boltann ganga. Það náðist ekki og ég er gríðarlega ósáttur við að hafa tapað þessum leik," sagði Ólafur.

„Að hafa tapað þessum leik á síðustu andartökum hans er í raun fáránlegt. KR-ingar mættu mjög ákveðnir í seinni hálfleikinn og ná að skora þetta þriðja mark leiksins snemma. Svo kemur þetta horn þarna í lokin og þá er þetta spurning um að vera fyrstur í boltann," sagði Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×