Enski boltinn

Hiddink lýsir yfir stuðningi við Cech

Nordic Photos/Getty Images

Guus Hiddink, stjóri Chelsea, segist standa við bakið á markverði sínum Petr Cech þó hann hafi ekki verið upp á sitt besta að undanförnu.

Cech fékk á sig klaufalegt mark á móti Liverpool í Meistaradeildinni í gær og á tíðum var eins og væri skrekkur í þessum frábæra markverði.

Hiddink hefur ekki stórar áhyggjur af Cech þó hann hafi oft leikið betur en nú. "Cech er mjög klókur og sjálfsgagnrýninn leikmaður. Hann var ekki ánægður með leik sinn á móti Bolton um daginn og maður sá það gegn Liverpool að hann var ekki alveg með sjálfum sér. Það er hinsvegar ekki óeðlilegt að menn eigi slaka leiki inn á milli og hann er alltaf mjög strangur við sjálfan sig - jafnvel þó hann spili vel," sagði Guus Hiddink við Sky.

Því hefur verið haldið fram að Cech gæti jafnvel misst sæti sitt í liði Chelsea fyrir undanúrslitaleikinn í bikarnum gegn Arsenal um næstu helgi.

"Ég yrði vonsvikinn ef ég missti sæti mitt. Hver yrði það ekki? Þetta eru auðvitað vangaveltur fyrir knattspyrnustjórann, en ég held að eitt mark geti ekki varpað skugga á frammistöðu manns yfir heilt tímabil. Ég verð bara að svara þessu á vellinum og á æfingum. Ég hef aldrei fengið svona mörg mörk á mig í tveimur leikjum og þetta er í fyrsta skipti sem ég geri mistök í tveimur leikjum í röð," sagði Cech.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×