Íslenski boltinn

Umfjöllun: Björn Daníel með tvö í sigri FH

Elvar Geir Magnússon skrifar
Björn Daníel Sverrisson, lengst til hægri, fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Björn Daníel Sverrisson, lengst til hægri, fagnar öðru marka sinna í kvöld. Mynd/Anton

Björn Daníel Sverrisson skoraði tvívegis og Atli Viðar Björnsson var með eitt þegar Íslandsmeistarar FH unnu öruggan 3-0 sigur á Fjölni í Pepsi-deild karla í kvöld.

Framundan er hlé á Pepsi-deildinni vegna landsleikja en Íslandsmeistarar FH fara inn í það hlé með tveggja stiga forystu á toppnum.

FH-ingar komust yfir strax í upphafi leiksins þegar Björn Daníel skoraði með fínu skoti framhjá Þórði Ingasyni. Heimamenn voru mun öflugri í upphafi leiks en svo komust Fjölnismenn betur inn í leikinn, áttu nokkrar góðar sóknir en gekk erfiðlega að skapa sér færi.

Fjölnismenn mættu ekki tilbúnir í seinni hálfleikinn og fengu mark beint í andlitið eftir um 40 sekúndna leik. Björn Daníel skoraði þá aftur, að þessu sinni með skalla eftir fyrirgjöf bakvarðarins Hjartar Loga Valgarðssonar.

Atli Viðar Björnsson gerði svo út um leikinn þegar hann skoraði þriðja mark FH af stuttu færi eftir að Matthías Vilhjálmsson skallaði knöttinn fyrir fætur hans. Þrátt fyrir að hafa lent 3-0 undir héldu Fjölnismenn áfram að sækja og voru í raun óheppnir að ná ekki að skora.

Aron Jóhannsson fékk nokkur mjög góð færi til að skora fyrir Fjölnismenn en það tókst ekki og FH-ingar því á toppi deildarinnar eftir sex umferðir.

FH - Fjölnir 3-0

1-0 Björn Daníel Sverrisson (3.)

2-0 Björn Daníel Sverrisson (46.)

3-0 Atli Viðar Björnsson (64.)

Kaplakrikavöllur. Áhorfendur: 1.563.

Dómari: Erlendur Eiríksson (7)

Skot (á mark): 10-11 (5-4)

Varin skot: Daði 4 - Þórður 2

Horn: 5-2

Aukaspyrnur fengnar: 10-11

Rangstöður: 2-0

FH (4-3-3):

Daði Lárusson 6

Guðmundur Sævarsson 6

Freyr Bjarnason 6

(65. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 6)

Tommy Nielsen 6

Hjörtur Logi Valgarðsson 7

Matthías Vilhjálmsson 7

Björn Daníel Sverrisson 8* - Maður leiksins

Davíð Þór Viðarsson 8

Matthías Guðmundsson 5

(61, Tryggvi Guðmundsson 6)

Atli Viðar Björnsson 7

Atli Guðnason 6

(71. Alexander Söderlund x)

Fjölnir (4-5-1):

Þórður Ingason 5

Gunnar Valur Gunnarsson 6

Ásgeir Aron Ásgeirsson 5

Ragnar Heimir Gunnarsson 5

Magnús Ingi Einarsson 5

Illugi Þór Gunnarsson 5

(90. Olgeir Óskarsson x)

Vigfús Arnar Jósepsson 6

Heimir Snær Guðmundsson 4

(69. Kristinn Freyr Sigurðsson 5)

Gunnar Már Guðmundsson 6

Aron Jóhannsson 7

Hermann Aðalgeirsson 4

(69. Guðmundur Karl Guðmundsson 5)

Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: FH - Fjölnir






Tengdar fréttir

Heimir: Höfum oft spilað betur

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir að sínir menn hafi oft spilað betur en þeir gerðu í kvöld en gat þó ekki verið annað en ánægður með að skora þrjú og halda markinu hreinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×