Logos vann víst fyrir Baug Valur Grettisson skrifar 16. mars 2009 09:32 Lögfræðistofunni Logos var falið að sækja skaðabótamál fyrir Baug árið 2005.
Lögfræðistofan Logos fór með skaðabótamál gegn íslenska ríkinu fyrir hönd Baugs Group árið 2005. Það gengur þvert á ummæli Gunnars Sturlusonar, lögfræðings Logos, sem sagði í viðtali við Vísi á föstudaginn að lögmenn stofunnar hefðu ekki starfað fyrir Baug. Orðrétt var haft eftir Gunnari á vefnum: „Við höfum ekki starfað sem lögmenn fyrir Baug og teljum okkur því fullkomlega hæf til þess að leysa úr þessu verkefni." Það er ekki rétt að lögmannsstofan hafi aldrei unnið fyrir Baug því árið 2005 fól fyrirtækið Logos það verk að fara í skaðabótamál gegn íslenska ríkinu en þá taldi fyrirtækið sig hafa hlotið skaða af völdum lögreglunnar. Hæstaréttalögmanninum Hákoni Árnasyni og samtarfsmönnum var þá falið málið af hálfu Baugs. Þetta kom fram í fréttayfirlýsingu sem var gefinn út þann fyrsta júlí árið 2005 og þáverandi stjórnarformaður Baugs skrifaði undir, Hreinn Loftsson. Gunnar Þór Þórarinsson var nýlega ráðinn til stofunnar en hann starfaði hjá Baugi í London á síðasta ári. Þar áður starfaði hann sem fulltrúi á lögmannsstofu Hreins Loftssonar, stjórnarmanns og hluthafa í Baugi, og eyddi fjórum árum í vinnu við hið svokallaða Baugsmál. Í viðtalinu á föstudaginn sagði Gunnar að Gunnar nafni sinn væri starfsmaður á skrifstofu LOGOS í London og það hefði því ekkert með hæfi skrifstofunnar að gera. „Hér starfa 55 lögfræðingar. Erlendur er skipaður skiptastjóri og hann starfar á skrifstofu okkar hér á Íslandi. Þó einn lögfræðingur úti í London hafi unnið hjá Baugi veldur það ekki vanhæfi skrifstofunnar til þess að fjalla um þetta mál," sagði Gunnar Sturluson við það tækifæri. LOGOS lögfræðistofa vann einnig að yfirtöku Baugs Group á Mosaic Fashion Ltd. að andvirði 406 milljóna punda sem voru með stærri kaupum á Íslandi í ágúst 2007. Stefán Hilmar Hilmarsson fjármálastjóri Baugs segir að kaupin hafi farið í gegnum Kaupþing sem hafi m.a séð um afskráningu úr Kauphöll. Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson, sagði í viðtali á föstudaginn, engan vafa mætti ríkja um hvort skiptastjóri hefði unnið fyrir þrotafélag. Ekki náðist í Gunnar Sturluson vegna málsins en hann er staddur erlendis.
Tengdar fréttir Lögmenn LOGOS ekki vanhæfir í Baugsmáli Gunnar Sturluson faglegur framkvæmdarstjóri lögmannsstofunnar LOGOS telur stofuna ekki vanhæfa til þess að fjalla um málefni Baugs Group. Erlendur Gíslason einn af eigendum stofunnar var skipaður skiptastjóri Baugs í morgun. Hann segir 55 lögfræðinga starfa hjá stofunni og þó einn starfsmaður sem starfi hjá LOGOS í London hafi eitt sinn unnið fyrir Baug geri það stofuna ekki vanhæfa. 13. mars 2009 12:23 Lögmaður LOGOS skipaður skiptastjóri Baugs Erlendur Gíslason lögmaður og einn af eigendum lögfræðistofunnar LOGOS var í morgun skipaður skiptastjóri í þrotabúi Baugs Group. Lögfræðistofan annaðist lagalega ráðgjöf og almenna lögmannaþjónustu við Baug áður en félagið fór í þrot. 13. mars 2009 11:46 LOGOS vann að yfirtöku Baugs á Mosaic LOGOS lögfræðistofa vann að yfirtöku Baugs Group á Mosaic Fashion Ltd. að andvirði 406 milljóna punda sem voru með stærri kaupum á Íslandi í ágúst 2007. Stefán Hilmar Hilmarsson fjármálastjóri Baugs segir að kaupin hafi farið í gegnum Kaupþing sem hafi m.a séð um afskráningu úr Kauphöll. Lögmaður segir engan vafa mega ríkja um hvort skiptastjóri hafi unnið fyrir þrotafélag. 13. mars 2009 15:03 Mest lesið Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Lést í sprengingunni Innlent Skammt stórra högga á milli Veður Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent „Auðvitað mikið áfall“ Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Fleiri fréttir Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Sjá meira
Lögmenn LOGOS ekki vanhæfir í Baugsmáli Gunnar Sturluson faglegur framkvæmdarstjóri lögmannsstofunnar LOGOS telur stofuna ekki vanhæfa til þess að fjalla um málefni Baugs Group. Erlendur Gíslason einn af eigendum stofunnar var skipaður skiptastjóri Baugs í morgun. Hann segir 55 lögfræðinga starfa hjá stofunni og þó einn starfsmaður sem starfi hjá LOGOS í London hafi eitt sinn unnið fyrir Baug geri það stofuna ekki vanhæfa. 13. mars 2009 12:23
Lögmaður LOGOS skipaður skiptastjóri Baugs Erlendur Gíslason lögmaður og einn af eigendum lögfræðistofunnar LOGOS var í morgun skipaður skiptastjóri í þrotabúi Baugs Group. Lögfræðistofan annaðist lagalega ráðgjöf og almenna lögmannaþjónustu við Baug áður en félagið fór í þrot. 13. mars 2009 11:46
LOGOS vann að yfirtöku Baugs á Mosaic LOGOS lögfræðistofa vann að yfirtöku Baugs Group á Mosaic Fashion Ltd. að andvirði 406 milljóna punda sem voru með stærri kaupum á Íslandi í ágúst 2007. Stefán Hilmar Hilmarsson fjármálastjóri Baugs segir að kaupin hafi farið í gegnum Kaupþing sem hafi m.a séð um afskráningu úr Kauphöll. Lögmaður segir engan vafa mega ríkja um hvort skiptastjóri hafi unnið fyrir þrotafélag. 13. mars 2009 15:03