Ný erlend spennusagnaröð gerist hér 24. nóvember 2009 06:00 Michael Ridpath.
Ný bókaröð breska metsöluhöfundarins Michaels Ridpath gerist hér á landi. Fyrsta bókin í bókaröðinni, sem nefnist Where the Shadows Lie, kemur út í júní á næsta ári hjá bókaútgáfunni Corvus í Bretlandi. Þegar hefur verið samið um útgáfu hér. „Ég kom til Íslands árið 1995 þegar ég var að kynna mína fyrstu bók Free to Trade [sem Vaka-Helgafell gaf út undir heitinu Myrkraverk] og fannst landið mjög heillandi. Frá þeim tíma gekk ég með þá hugmynd í maganum að gaman gæti verið að skrifa bók sem gerðist á Íslandi," segir Ridpath. Hugmyndin hafi svo öðlast nýtt líf fyrir um tveimur árum þegar hann ákvað að hverfa frá ritun spennusagna um fjármálaheiminn. Ridpath hefur komið hingað þrisvar á þessum tveimur árum og kveðst æ hugfangnari af sögusviðinu. „Og ég á eftir að koma miklu oftar, enda að mörgu að gæta þegar skrifunum vindur fram." Hann er þegar byrjaður á bók tvö og segir kaldhæðni örlaganna að brostið hafi á með efnahagshruni þegar hann ætlaði sér að láta af fjármálatengdum skrifum. „Hjá því varð ekki komist að láta hrunið koma við sögu. En snertiflöturinn er frekar við fórnarlömb fjármálakreppunnar en sjónarhól bankamanna." Michael Ridpath segir hugmyndinni um nýju bókaröðinni hafa verið afar vel tekið og þegar eru komnir tíu útgefendur, flestir í Evrópu, Ísland er þar á meðal, og einn í Brasilíu. Bjarni Þorsteinsson, útgáfustjóri Bjarts Veraldar, staðfestir að verið sé að leggja lokahönd á íslenska þýðingu bókarinnar. „Við stefndum á útgáfu nú fyrir jólin, en það hafðist ekki. Bókin kemur út á næsta ári, en ekki er búið að negla niður hvenær," segir hann. Aðalsöguhetja bókanna er rannsóknarlögreglumaður í Boston í Bandaríkjunum sem er af íslenskum ættum. Hann heitir Magnus Jonson og er fæddur hér á landi en ólst upp vestra frá tólf ára aldri. Hann hrekst hins vegar til Íslands eftir að hafa lent upp á kant við eiturlyfjahring í Boston. Þá hefur hann hug á að spreyta sig á óleystu morði á föður sínum. Þá blandast í söguna dularfullt handrit sem fjölskylda ein á að hafa gætt í átta hundruð ár. Rithöfundurinn J.R.R. Tolkien á að hafa fengið að sjá skjalið árið 1930, en í því er greint frá hring sem í er falinn ægimáttur. Skjalið er því eftirsótt í sjálfu sér og tengist rannsókn á morði á prófessor í íslenskum bókmenntum. Svo er bara spurningin hvort hringurinn er til.olikr@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Fleiri fréttir Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Sjá meira