Stefnt vegna ummæla viðmælanda 21. ágúst 2009 04:15 Valborg Svanholt sagði í viðtalinu að fyrrverandi tengdasonur hennar færi illa með barnabarn hennar.
Guðríður Haraldsdóttir, ritstjóri Vikunnar, hefur hafnað samtals tíu milljóna króna miskabótakröfum fjölskyldu úr Sandgerði vegna umfjöllunar um málefni hennar í nýlegu tölublaði Vikunnar. Telur fjölskyldan að umfjöllunin, sem ekki var merkt höfundi, hafi verið full af grófum ærumeiðingum og að hún hafi brotið gegn friðhelgi einkalífs hennar. Fjölskyldan hyggst fara með málið fyrir dómstóla. Í greininni er rætt við Valborgu Svanholt Níelsdóttur, sem ber þungar sakir á fyrrverandi eiginmann látinnar dóttur sinnar. Hún segir segir hann hafa beitt dóttur-dóttur sína ofbeldi og hafi rænt henni, hann skoði barnaklám og segir frá kærum á hendur honum fyrir misnotkun sem síðar voru felldar niður. Tvö mál verða höfðuð á hendur Guðríði. Annað höfðar faðirinn, sem er bandarískur, og hitt höfðar hann ásamt núverandi konu sinni fyrir hönd þrettán ára dóttur þeirra, en konan hefur nú ættleitt hana. Í greininni er dóttirin nafngreind, fjallað um sjálfsvígshugleiðingar hennar og sálfræðiaðstoð, hún kölluð Öskubuska og birtar af henni myndir án hennar samþykkis. Málin verða þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í byrjun september. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður fjölskyldunnar, segist meðal annars munu byggja á því að Birtíngur og blaðamenn útgáfunnar, þótt það eigi að sjálfsögðu ekki við um alla, séu síbrotamenn á þessu sviði, enda hafi hann unnið fimm meiðyrðamál gegn félaginu og starfsmönnum þess undanfarið ár og tvö vegna ólögmætra myndbirtinga. Nýlegum dómi yfir blaðamanni Vikunnar, sem dæmdur var fyrir meiðyrði vegna ummæla viðmælanda, hefur nú verið vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu með fulltingi Blaðamannafélagins.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Sjá meira