Samfélagið krufið og skilgreint upp á nýtt 13. nóvember 2009 06:00 Fólk hefur varið degi og nótt í undirbúning þjóðfundarins sem fram fer í Laugardalshöll á morgun. Framkvæmdastjórnin hittist á fundi í hádeginu í gær og fór yfir stöðuna. fréttablaðið/valli „
Hvaða lífsgildi eiga að vera okkur leiðarljós í þróun samfélagsins?“ Þannig verður spurt á þjóðfundinum í Laugardalshöll á morgun. Í framhaldinu verður rætt um meginstoðir samfélagsins, eins og velferðar- og menntakerfi, atvinnuskapandi umhverfi, regluverk og fleira og með hvaða hætti hægt er að endurmóta þær í samræmi við lífsgildin sem lögð hafa verið til grundvallar. Mat aðstandenda þjóðfundarins er að í endurreisnarstörfum síðustu mánaða hafi – hugsanlega óhjákvæmilega – verið horft þröngt á aðkallandi verkefni og unnið innan þröngs tímaramma. Þjóðfundurinn gefi hins vegar færi á að lyfta umræðunni upp úr einstökum viðfangsefnum, horfa lengra fram og hlusta á visku þjóðarinnar án þess að hún komi í gegnum síu stjórnmálaflokka eða hagsmunasamtaka. Standa vonir þeirra til að út úr fundinum komi sameiginlegt gildismat og framtíðarsýn, auk ótal hugmynda um endurreisn Íslands. Undirbúningur hefur staðið þrotlaust síðustu vikur og mánuði og hefur fjöldi fólks komið að verkinu. Allir utan einn vinna í sjálfboðavinnu en verkefnið nýtur stuðnings margra, einkaaðila og opinberra. Fundinum er ætlað að ná athyglinni af smáatriðum og skammtímalausnum og yfir á framtíðarsýn þjóðarinnar. Horfa á hærra og lengra og búa til raunverulega umræðu um framtíð Íslands – eins og segir í upplýsingum. Vonir standa til að niðurstöður þjóðfundarins liggi fyrir strax annað kvöld eða snemma á sunnudaginn og getur fólk kynnt sér þær á thjodfundur2009.is. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira