Um þriðjungur til í greiðsluverkfall 22. september 2009 12:08
Tæplega níutíu prósent þjóðarinnar væru reiðubúin að taka þátt í að þrýsta á stjórnvöld um aðgerðir í þágu heimilanna, samkvæmt nýrri Capacent könnun. Aðeins um þriðjungur er hins vegar til í að taka þátt í hópaðgerðum og fara í tímabundið greiðsluverkfall. Capacent Gallup gerði könnun fyrir Hagsmunasamtök heimilanna síðla í ágúst og byrjun september, en niðurstöðurnar voru birtar í gær. Samkvæmt þeim er meirihluti landsmanna í verulegum fjárhagsþrengingum, rúmlega 37 prósent svarenda segja enda ná saman með naumindum, rúm 10 prósent segjast ganga á sparifé sitt til að ná endum saman, rúm 5 prósent segjast safna skuldum og rúm tvö prósent eru gjaldþrota eða stefna í gjaldþrot. Samanlagt gera þetta um 55 prósent af þeim sem svöruðu, en Arney Einarsdóttir, stjónarkona í Hagsmunasamtökum heimilanna, segir að á bak við þær hlutfallstölur séu um hundrað þúsund manns. Það kemur því ef til vill ekki á óvart að rúm 87 prósent svarenda segjast tilbúin til að taka þátt í að þrýsta á stjórnvöld um aðgerðir í þágu heimilanna. Það felur þó ekki í sér hópmálsókn gegn ríkinu, því minnihluti - eða tæp 37 prósent - væri til í slíkar aðgerðir. Dæmið snýst hins vegar við þegar kemur að fjármálafyrirtækjum, en 56 prósent eru reiðubúin til að taka þátt í hópmálsókn gagnvart þeim. Niðurstöðurnar sýna einnig að um fjörtíu prósent eru til í að taka lausafjármuni sína úr ríkisbönkunum, en aðeins þriðjungur er hlynntur því að taka þátt í hópaðgerðum með því að fara í tímabundið greiðsluverkfall og greiða ekki af lánum í nokkra daga. Þá er yfirgnæfandi meirihluti - 75 til 80 prósent - hlynntur hugmyndum um afnám verðtryggingar og sömu sögu er að segja um almennar niðurfærslur á höfuðstóli verð- og gengistryggðra lána. En þrátt fyrir erfitt árferði segja tæp níutíu prósent ólíklegt að þau flytji úr landi á næstunni.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira