Svindlað nánast óheft með olíu fyrir hundruð milljóna 24. nóvember 2009 06:00
Allt að 74 prósentum litaðrar olíu sem keypt er í sjálfsafgreiðslustöðvum er ekki dælt á vinnuvélar eins og til er ætlast. Þetta segir Jóhannes Jónsson, starfsmaður hjá Ríkisskattstjóra, að athuganir sýni. Olíunni sé dælt á önnur ökutæki og af þeim sökum verði ríkissjóður af á bilinu 160 til 230 milljónum króna árlega. Á sama tíma er Ríkisskattstjóra óheimilt að nota upptökur úr eftirlitsmyndavélum bensínstöðva til að koma upp um þá sem kaupa gjaldfrjálsa vinnuvélaolíu á einkabíla sína. Persónuvernd segir Ríkisskattstjóra skorta lagaheimild til þess. Lituð olía kostar ríflega sextíu krónum minna hver lítri en venjuleg dísilolía sem ber olíugjald. Munurinn er því mikill og margir láta freistast. Á móti kemur að sektir eru háar ef upp kemst. Fyrir venjulegan fólksbíl er sektin 200 þúsund krónur, sem síðan tvöfaldast við ítrekuð brot. Jóhannes segir að Ríkisskattstjóri hafi tvisvar á liðnu ári lagt til við fjármálaráðuneytið að þeir sem kaupi litaða olíu þurfi að fá útgefin sérstök viðskiptakort hjá olíufélögunum og skattayfirvöldum sé tilkynnt um þau. Þannig verði auðveldara að fylgjast með að farið sé að lögum. „Eftir því sem ég best veit hefur ráðuneytið ekki unnið úr þessu. Ég held að ágætis skilningur sé á þessu hjá ráðuneytinu en að það hafi haft mörgum öðrum hnöppum að hneppa að undanförnu," segir hann. Ætlun Ríkisskattstjóra var að fá aðgang að eftirlitsmyndavélum á bensínstöðvum til að nota ásamt bókhaldsgögnum stöðvanna til að fletta ofan af svindlurunum. Persónuvernd segir Ríkisskattstjóra hins vegar ekki hafa sömu heimild og lögregla til vinnslu persónuupplýsinga í þágu rannsóknar. „Það verður þá svo að vera," segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri um þessa niðurstöðu. Jóhannes Jónsson skrifaði í fyrra í Tíund, blað Ríkisskattstjóra, og setti fram áðurnefnda tilgátu um að 74 prósent af litaðri olíu í sjálfsölum væru keypt á bíla sem ekki hefðu til þess rétt. Var það byggt á gögnum frá olíufélögunum sem sýndu að í þessum fjölda tilvika hefði verið dælt minna en áttatíu lítrum í hverri afgreiðslu. „Einnig virðist vera ótrúlega algengt að verið sé að kaupa litaða olíu á kvöldin og á nóttunni og á dælum sem eru ekki í alfaraleið," skrifaði Jóhannes í fyrra og sagði ljóst að takmarka þyrfti verulega aðgengi að litaðri olíu. Það hefur enn ekki verið gert. - gar
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira