Skoða hliðargreiðslur frá orkufyrirtækjum 18. september 2009 04:30 Virkjanir í neðri hluta Þjórsár hefðu áhrif á vatnsstreymi í fossinum. Umhverfisráðherra er með greiðslur til sveitarfélagsins frá Landsvirkjun í skoðun.fréttablaðið/anton
Umhverfisráðherra mun taka greiðslur Landsvirkjunar til Skeiða- og Gnúpverjahrepps til skoðunar. Samgönguráðuneytið úrskurðaði nýverið að svipaðar greiðslur fyrirtækisins til Flóahrepps hefðu stangast á við lög. Ekki sé heimild í lögum fyrir því að aðrir en sveitarfélag beri kostnað vegna aðalskipulags. Í tilviki Flóahrepps var um að ræða greiðslur fyrir skipulagsvinnu, sem fyrirtækið innti af hendi. Fram hefur komið að fyrirtækið muni einnig sjá um uppsetningu gsm-kerfis í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að ljóst sé að umhverfið í kringum þessa samninga hafi ekki verið í lagi. Ábyrg stjórnvöld hljóti að skoða þau mál. „Það þarf að skoða alla samninga, ekki bara þessa heldur öll samskipti orkufyrirtækja og sveitarfélaga. Fyrst og fremst verður þetta skoðað út frá úrskurði samgönguráðuneytisins. En mér finnst líklegt að þetta setji allar slíkar ákvarðanir í nýtt samhengi.“ Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent umhverfisráðherra bréf og hvatt hana til að skoða aðkomu Landsvirkjunar að ákvörðunum sveitarfélaga síðastliðin tíu til fimmtán ár. Þá leggja samtökin til að skipulagsbreytingar vegna virkjana í neðri hluta Þjórsá verði gerðar ómerkar vegna vanhæfis sveitarstjórnarmanna. Svandís segist fara yfir ábendingar samtakanna með jákvæðum huga. svandís svavarsdóttir Greiðslur af þessum toga hafa þekkst um nokkra hríð. Skemmst er að minnast samnings Orkuveitu Reykjavíkur og Sveitarfélagsins Ölfuss sem tengdust virkjunum á Hellisheiði þar sem fyrirtækið greiddi fyrir nýja fjárrétt og hesthús og fyrir að annast viðhald mannvirkja. Þá skuldbatt fyrirtækið sig til að sjá um lýsingu vegarins um Þrengsli, frá Suðurlandsvegi í Þorlákshöfn fyrir 14 milljónir króna og leggja ljósleiðara í Þorlákshöfn. katrín júlíusdóttir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að setja þurfi reglur um slíka samninga þannig að allt sé uppi á borðinu fyrirfram. „Kostnaðarskipting verður að vera skýr áður en gengið er til samninga.“ Katrín minnir þó á að lítil sveitarfélög geti lent í vandræðum með hinn mikla kostnað sem fylgir slíkum framkvæmdum. Því geti þátttaka annarra í þeim kostnaði verið eðlileg
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira