Innlent

Sló konu í andlitið á Kaffi Akureyri

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tuttugu og tveggja ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Maðurinn er sakaður um að hafa slegið 26 ára gamla konu með glerglasi í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut fjölda sára í hársverði, á enni, á vinstra gagnauga og víðar. Árásin átti sér stað á Kaffi Akureyri þann 31. maí síðastliðinn. Konan sem ráðist var á krefst 500 þúsund króna í bætur frá árásarmanninum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×