Lengri ábyrgð ekki ófrávíkjanleg krafa 19. september 2009 06:00
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hitti sendiherra Breta og Hollendinga í gær og ræddi áframhald Icesave-málsins. Steingrímur segir hugmyndir þjóðanna vera fyrstu viðbrögð við samþykkt Alþingis. Málið sé í eðlilegum farvegi og aldrei hafi verið til umræðu að kalla þing saman núna, enda verði það sett 1. október. Frekari viðræður muni leiða í ljós hvort málið þurfi fyrir Alþingi á nýjan leik. Bretar og Hollendingar gerðu athugasemdir við það að ríkisábyrgðin geti fallið úr gildi á ákveðnum tímapunkti, hvernig sem lánið stendur þá. Í fyrirvörum Alþingis er kveðið á um að að ríkisábyrgðin gildi til 5. júní 2024. Stefni í að lánsfjárhæðin, ásamt vöxtum, verði ekki að fullu greidd fyrir þann tíma „skulu aðilar lánasamninganna þá tímanlega eiga með sér viðræður um meðferð málsins og áhrif þess á samningana og skuldbindingar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta", eins og segir í lögunum. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Bretar og Hollendingar líti svo á að með þessu ákvæði séu lausir endar skildir eftir. Það sé því í raun sett í hendur framtíðarviðræðunefnda hvað gerist ef ekki tekst að greiða lánið upp fyrir tilsettan frest. Embættismenn þjóðanna hafa hist tvisvar á rúmri viku til að ræða málið. Stuðningur er við það í þingflokkum stjórnarflokkanna að halda viðræðum áfram. Steingrímur segir að umræðurnar haldi áfram næstu daga, allir séu á eitt sáttir um að brýnt sé að ljúka málinu. Óþarfa upphlaup hafi verið hér heima við hugmyndum Breta og Hollendinga. Mikilvægast sé að leysa málið farsællega, þjóðinni til heilla. Stjórnarandstæðan hefur lýst því yfir að um ófrávíkjanlegt skilyrði sé að ræða þegar kemur að lokum ríkisábyrgðar.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira