Eitt af því fáa í lífinu sem ég sé virkilega eftir Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. júní 2009 08:00 Leikmenn Keflavíkur klappa fyrir stuðningsmönnum sínum. fréttablaðið/daníel „
Ég veit ekki hvað ég var að spá. Þetta gerðist í einhverri bræði. Ég var ekki að reyna að hitta neinn, kastaði bara frá mér flöskunni í bræði," sagði Keflvíkingurinn Haraldur Bjarni Magnússon sem varð uppvís að því að kasta hálfs lítra kókflösku inn á KR-völlinn á sunnudagskvöld. Hún lenti rétt hjá KR-ingnum Prince Rajcomar. Tvö ljót atvik áttu sér stað í stúkunni því annar stuðningsmaður Keflavíkur kastaði flösku inn í áhorfendahóp KR og hafnaði flaskan í hnakkanum á saklausri konu. Haraldur Bjarni sá að sér um leið og hann kom heim um kvöldið og sendi þá frá sér afsökunarbeiðni á heimasíðu stuðningsmanna Keflavíkur. „Ég sé alveg rosalega eftir þessu. Ég sé nú ekki eftir mörgu í lífinu en þetta er eitt af því sem ég sé eftir," sagði Haraldur en hvernig finnst honum að ætti að refsa sér fyrir atvikið? „Ég tek þeirri refsingu sem ég fæ þegjandi. Ég er samt fullur iðrunar. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég verð uppvís að slíkri hegðun á vellinum og er yfirleitt prúður á vellinum. Ég get lofað því að slíkt kemur ekki fyrir aftur," sagði Haraldur fullur iðrunar. Stuðningsmenn Stjörnunnar urðu uppvísir að slæmri hegðun á heimavelli Keflavíkur um daginn og voru Keflvíkingar fljótir að fordæma hegðun Stjörnumannanna. Þeir minntust ekki einu orði á hegðun sinna manna á heimasíðu sinni í gær. „Við getum ekkert við þessu gert nema beðið okkar fólk um að sína stillingu. Það er ekki hægt að halda í höndina á öllum stuðningsmönnunum. Mér finnst samt ekkert sameiginlegt með þessu atviki og atviki Stjörnumanna. Þá var hópur búinn að æfa níðsöng um leikmann en þarna missir aðili stjórn á sér," sagði Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur. „Við lítum málið alvarlegum augum en höfum ekki rætt hvort við gerum eitthvað í málinu. Ég mun samt ræða við drenginn."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira