Kemur vel til greina að endurskoða lögin 18. september 2009 06:00 Ragna Árnadóttir
Fyllilega kemur til greina að endurskoða kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga, segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, spurð um það sem fram kemur í nýútkominni bók Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Á mannamáli, um ofbeldi á Íslandi, og umræðu sem spunnist hefur um efni hennar. Í bókinni fjallar Þórdís Elva meðal annars um misræmi í viðurlögum við kynferðisbrotum. Hún tekur dæmi af ímynduðum manni sem eigi þrjár dætur, 14, 15 og 17 ára. Samkvæmt lögum eigi hann mest yfir höfði sér sextán ára fangelsi fyrir að misnota þá yngstu, tólf ára fangelsi fyrir að misnota þá í miðið og átta ára fangelsi fyrir að misnota sautján ára dótturina. Maðurinn á síðan yfir höfði sér mest sextán ára fangelsi fyrir að nauðga ókunnugri konu, tvöfalt þyngri refsingu en fyrir að misnota elstu dóttur sína. Nefnt hefur verið að fella öll brot þar sem samræði er haft við börn undir hugtakið nauðgun. „Það er vissulega hægt að velta fyrir sér af hverju svo svívirðilegir verknaðir skuli ekki allir sæta sama refsihámarkinu," segir Ragna. Hún bendir þó á að sérstök ákvæði um börn í kynferðisbrotakaflanum séu börnunum til verndar, vegna þess að ekki þurfi nauðgun, í skilningi hegningarlaga, til að samræði við barn sé refsivert. Þannig hafi hegningarlög að geyma ýmiss konar brotalýsingar sem væntanlega leiða til þess að unnt sé sakfella fleiri en færri. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Enn fremur bendir Ragna á að ákvæðin um samræði við börn útiloki ekki að sá sem gerist brotlegur við það ákvæði gerist einnig sekur um nauðgun, sé ofbeldi beitt eins og lögin gera ráð fyrir í nauðgun. Þá hefur einnig vakið athygli hversu langt frá hámarki refsirammans dómar í kynferðisbrotamálum eru jafnan. Ragna segir að í greinargerð með nýjustu lagabreytingunum á kynferðisbrotakafla hegningarlaga, frá 2007, komi fram að refsimörkin séu höfð rúm, sem þýðir að þau séu í raun mun hærri en dæmdar refsingar eru almennt. „Um það má deila, og spyrja af hverju dómarar nota ekki allan refsirammann þegar hann er til staðar," segir Ragna. Hún nefnir þó að dómar í kynferðisbrotamálum hafi að undanförnu verið að þyngjast, hvort sem það er vegna þess að brotin verði æ alvarlegri eða að dómstólar séu hægt og bítandi að þyngja refsingarnar samfara aukinni þekkingu á afleiðingum brotanna. Ragna segist telja að sú umræða sem átt hefur sér stað um kynferðisbrot, ekki síst gegn börnum, undanfarin ár, muni breyta því hvernig litið sé á brotin. Fyllilega komi til greina að taka kynferðisbrotakafla laganna enn á ný til skoðunar, enda hafi Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður allsherjarnefndar, vakið máls á því.
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira