Hanna Birna: Þetta er dagurinn sem Höfða var bjargað 25. september 2009 22:01 "
Sem betur fer getum við nú sagt að þetta sé dagurinn sem Höfða var bjargað. Húsið er, eins og allir vita algjörlega ómetanlegt og þess vegna er okkur öllum efst í huga þakklæti til allra þeirra sem tryggðu að svo vel tókst til. Borgaryfirvöld vilja þakka öllum þeim sem að slökkvistarfinu og björgun verðmæta komu, slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, lögreglu og starfsmönnum Reykjavíkurborgar," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, um eldsvoðann í Höfða. Sjálf var hún í eldlínunni þegar hún ásamt fleirum úr borgarstjórn Reykjavíkur björguðu menningaverðmætum og innastokksmunum í brunanum fyrr í dag. Í tilkynningu frá borginni segir að þegar sé farið að skipuleggja viðgerðir á húsinu. Lesa má tilkynninguna hér fyrir neðan: Giftusamlega tókst að ráða niðurlögum eldsins sem upp kom í Höfða, móttökuhúsi Reykjavíkurborgar, á sjötta tímanum í kvöld. Brunaviðvörunarkerfi hússins fór í gang og allt tiltækt slökkvilið fór á staðinn. Eldurinn kom upp í risi norðvestanmegin í húsinu, og fóru reykkafarar upp á háaloft til þess að hefta útbreiðslu eldsins auk þess sem þakið var rofið til að auðvelda slökkvistarf. Ljóst er að á tímabili gat brugðið til beggja vona, en fyrir snör handtök slökkviliðs tókst að slökkva eldinn á innan við klukkustund. Slökkviliðsmönnum, lögreglu og starfsfólki Reykjavíkurborgar tókst að bjarga verðmætum úr húsinu, þ.á.m. ómetanlegum listaverkum og sögulegum heimildum og útlit fyrir að þau séu óskemmd. Listaverkunum hefur verið komið fyrir á Kjarvalsstöðum og hafa þegar verið yfirfarin af forstöðumanni Listasafns Reykjavíkur. Erfitt er að segja nákvæmlega til um umfang skemmda á húsinu á þessari stundu. Hreinsunarstarf er þegar hafið og tryggingasérfræðingar eru að meta stöðuna en húsið var brunatryggt. Einnig er byrjað að skipuleggja viðgerð á húsinu og aðgerðir til að tryggja að húsið geti sem fyrst gegnt sínu hlutverki á ný. Viðgerð mun þó ekki hefjast fyrr en rannsókn á eldsupptökum er lokið. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir að betur hafi tekist til en á horfðist í fyrstu. Um þessar mundir eru 100 ár liðin frá því að húsið Höfði var tekið í notkun. Húsið á sér merkilega sögu sem tengist samskiptum Íslendinga við aðrar þjóðir. Það var reist á Félagstúni fyrir franska konsúlinn, Jean Paul Brillouin, hannað í Austur-Noregi og flutt tilsniðið til Íslands. Margir sögufrægir einstaklingar hafa búið í húsinu, en það er hvað þekktast fyrir leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs sem haldinn var í Höfða í október 1986, en fundurinn er talinn hafa markað upphafið að endalokum kalda stríðsins.
Tengdar fréttir Eldur í Höfða Eldur kviknaði í Höfða fyrir stundu. Nokkrir slökkviliðsbílar eru mættir á vettvang ásamt lögreglu og sjúkrabílum. Ekki er vitað hversu mikill eldur er í húsinu en slökkvistarf er hafið. 25. september 2009 17:43 Slökkviliðsmenn rífa þakið af Höfða Slökkviliðsmenn reyna í þessum töluðu orðum að slökkva eldinn bæði inn í Höfða og úti samkvæmt fréttaritara. Þá er verið að rífa hluta af þakinu af til þess að komast að eldinu svo það sé auðveldara að slökkva hann. 25. september 2009 18:03 Borgarstjórn ber út menningaverðmæti Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, bera út málverk og sófasett úr Höfða. 25. september 2009 18:22 Búið að ráða niðurlögum eldsins - myndir Búið er að ná tökum á eldinum í Höfða. Mikill eldur blossaði upp í þessu sögufræga húsi rétt fyrir sex í kvöld. 25. september 2009 19:21 Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira
Eldur í Höfða Eldur kviknaði í Höfða fyrir stundu. Nokkrir slökkviliðsbílar eru mættir á vettvang ásamt lögreglu og sjúkrabílum. Ekki er vitað hversu mikill eldur er í húsinu en slökkvistarf er hafið. 25. september 2009 17:43
Slökkviliðsmenn rífa þakið af Höfða Slökkviliðsmenn reyna í þessum töluðu orðum að slökkva eldinn bæði inn í Höfða og úti samkvæmt fréttaritara. Þá er verið að rífa hluta af þakinu af til þess að komast að eldinu svo það sé auðveldara að slökkva hann. 25. september 2009 18:03
Borgarstjórn ber út menningaverðmæti Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, bera út málverk og sófasett úr Höfða. 25. september 2009 18:22
Búið að ráða niðurlögum eldsins - myndir Búið er að ná tökum á eldinum í Höfða. Mikill eldur blossaði upp í þessu sögufræga húsi rétt fyrir sex í kvöld. 25. september 2009 19:21