Umfjöllun: FH-grýlan lifur góðu lífi í vesturbænum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. maí 2009 17:08 Atli Guðnason var hetja FH í kvöld. Mynd/Vilhelm
Íslandsmeistarar FH unnu góðan 2-1 sigur á bikarmeisturum KR í stórleik fimmtu umferðar Pepsi-deildar karla í kvöld. KR-ingar komust yfir með marki Bjarna Guðjónssonar snemma í síðari hálfleik en eins og svo oft áður í vor létu FH-ingar ekki slá sig út af laginu. Þeir skoruðu tvívegis á síðasta hálftíma leiksins - fyrst Matthías Vilhjálmsson og svo Atli Guðnason undir lok leiksins. KR-ingar mega vera heldur ósáttir við að fá ekkert úr þessum leik enda lék liðið vel á löngum köflum. Þeir geta þó engum nema sjálfum sér um enda þýðir lítið að leggjast í skotgrafirnar með 1-0 forystu gegn FH. Daði Lárusson var besti maður FH í leiknum enda bjargaði hann glæsilega í þrígang frá heimamönnum. Tvisvar í fyrri hálfleik - frá Prince Rajcomar og svo Bjarna Guðjónssyni. En hann kom engum vörnum við þegar að Bjarni fékk gott skotfæri utan teigs og lét vaða að marki. Boltinn hafnaði í netinu og héldu margir KR-ingar að langri bið þeirra eftir sigur á FH væri lokið. En aldeilis ekki. Þá fyrst fóru Hafnfirðingar að spila sinn leik. Þeir héldu boltanum vel innan liðsins og fóru að nýta kantana betur. Það var einmitt vængmaðurinn Matthías Guðmundsson sem átti fyrirgjöfina á nafna sinn Vilhjálmsson í jöfnunarmarkinu. Sá síðarnefndi staðsetti sig vel í teig KR og skoraði með góðum skalla. Freyr Bjarnason komst svo nálægt því að koma sínum mönnum í FH yfir með skalla eftir aukaspyrnu en hann náði ekki að stýra boltanum á markið. Skömmu síðar komst Gunnar Örn Jónsson, leikmaður KR, í stórhættulegt færi eftir fyrirgjöf Gunnars Kristjánssonar. En enn og aftur var Daði á hárréttum stað og varði vel frá honum. FH-ingar sóttu meira á lokamínútum leiksins og uppskáru gott mark. Þeir komust í efnilega sókn á 87. mínútu sem lauk með því að varamaðurinn Tryggvi Guðmundsson tók góða rispu að markinu, náði skoti sem Stefán Logi varði. En boltinn fór beint fyrir markið þar sem Atli var mættur og stýrði knettinum í autt markið. KR-ingar þurfa því að bíða eitthvað lengur eftir sínum fyrsta sigri á FH í fimm ár.KR - FH 1-2 1-0 Bjarni Guðjónsson (57.) 1-1 Matthías Vilhjálmsson (67.) 1-2 Atli Guðnason (87.) KR-völlur. Áhorfendur: 2.370 Dómari: Valgeir Valgeirsson (7)Skot (á mark): 12-10 (5-5)Varin skot: Stefán Logi 3 - Daði 3.Horn: 7-10Aukaspyrnur fengnar: 15-14Rangstöður: 1-0KR (4-4-2): Stefán Logi Magnússon 6 Skúli Jón Friðgeirsson 6 Grétar Sigurðarson 6 Mark Rutgers 7 Jordao Diogo 7 Gunnar Örn Jónsson 5 (84. Guðmundur Pétursson -) Bjarni Guðjónsson 8 Jónas Guðni Sævarsson 7 Óskar Örn Hauksson 4 (69. Gunnar Kristjánsson 5) Baldur Sigurðsson 6 Prince Rajcomar 6 (80. Björgólfur Takefusa -)FH (4-3-3):Daði Lárusson 8 - maður leiksins Guðmundur Sævarsson 6 Pétur Viðarsson - (19. Freyr Bjarnason 6) Tommy Nielsen 7 Hjörtur Logi Valgarðsson 7 Matthías Vilhjálmsson 6 Björn Daníel Sverrisson 5 Davíð Þór Viðarsson 6 Matthías Guðmundsson 6 (77. Tryggvi Guðmundsson -) Atli Viðar Björnsson 5 (70. Alexander Söderlund 5) Atli Guðnason 6 Leiknum var lýst beint á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins og má lesa lýsingu leiksins hér: KR - FH.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Davíð: Bara sigurvegarar í FH Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, var hæstánægður með sína menn eftir 2-1 sigur á KR á útivelli í kvöld. 28. maí 2009 22:21 Logi: Áttum skilið að fá eitthvað úr leiknum Logi Ólafsson, þjálfari KR, sagði að sínir menn hefðu átt skilið að fá eitthvað meira úr leiknum miðað við frammistöðu þeirra gegn FH í kvöld. 28. maí 2009 22:30 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Sjá meira
Davíð: Bara sigurvegarar í FH Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, var hæstánægður með sína menn eftir 2-1 sigur á KR á útivelli í kvöld. 28. maí 2009 22:21
Logi: Áttum skilið að fá eitthvað úr leiknum Logi Ólafsson, þjálfari KR, sagði að sínir menn hefðu átt skilið að fá eitthvað meira úr leiknum miðað við frammistöðu þeirra gegn FH í kvöld. 28. maí 2009 22:30