Heimir: Þetta eru blendnar tilfinningar 28. maí 2009 22:30 Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV.
Það var bjart yfir Heimi Hallgrímssyni þjálfara ÍBV, eftir sigur hans manna gegn Fjölni á Fjölnisvelli í kvöld. Tilfinningarnar voru engu að síður blendnar þar sem tveir lykilmenn Eyjamanna fengu að líta rauða spjaldið í kvöld. Bjarni Rúnar Einarsson strax á 17. mínútu og Tony Mawejje á þeirri 89. mínútu. „Ég er alltaf glaður en auðvitað eru þetta blendnar tilfinningar. Ég vil ekki missa einn einasta leikmann í bann. Ef maður fær hinsvegar þrjú stig fyrir það þá kannski sættir maður sig við það," sagði Heimir. „Það er stórhættulegt að missa mann útaf svona snemma," sagði Heimir en sem fyrr segir fékk Bjarni Rúnar að líta rauða spjaldið á 17. mínútu. Tómas Leifsson var þá að sleppa í gegn en féll við eftir viðskipti sín við Bjarna. Garðar Örn Hinriksson sýndi honum rakleiðis rauða spjaldið. „Ég var mjög ósammála þessum dómi og ég vona að hann hafi rétt fyrir sér hans vegna. Því annars eru þetta hrikaleg mistök og hefðu í raun átt að kosta okkur sigurinn," sagði Heimir. Um spjaldið sem Tony Mawejje fékk að líta á 89. mínútu fyrir munnbrúk hafði Heimir þetta að segja: Þetta var bara kjánalegt spjald í lokin. Sem er nánast ófyrirgefanlegt hjá svona reyndum manni. Þetta eiga menn ekki að gera." Þetta voru fyrstu stig Eyjamanna en jafnfram fyrstu mörk liðsins. „Við erum ekki búnir að vera síðri en andstæðingurinn nema á móti Stjörnunni, þá vorum við bara slakir. Þetta er ungt lið og auðvitað á það eftir að eiga slaka leiki en í hinum leikjunum fjórum erum við að minnsta kosti ekki búnir að vera síðri aðilinn. Okkur vantaði bara að skora og nú kom það." Veðrið í Grafarvoginum í kvöld var leiðinlegt. Rok og rigning. Það ættu þó að heita kjöraðstæður hjá Eyjamönnum. Aðspurður hvort þeir hafi komið með það með sér svaraði tannlæknirinn Heimir léttur í bragði: „Nei ég held að það hafi verið hérna þegar við komum."
Tengdar fréttir Ásmundur: Lélegt af okkar hálfu Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var að vonum daufur í dálkinn að loknum leik Fjölnis og ÍBV þar sem hans menn lutu lægra haldi á heimavelli, 1-3. 28. maí 2009 21:59 Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Sjá meira
Ásmundur: Lélegt af okkar hálfu Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var að vonum daufur í dálkinn að loknum leik Fjölnis og ÍBV þar sem hans menn lutu lægra haldi á heimavelli, 1-3. 28. maí 2009 21:59