Á hrakhólum með bát 16. maí 2009 04:00 Eldborg er í raun handverk bátasmiðanna en nú eru góð ráð dýr því báturinn á að vera kominn út fyrir mánaðamótin. fréttablaðið/jón sigurður
Síðastliðin tvö og hálft ár ár hafa þau Þorsteinn Máni Árnason og María Sigurjónsdóttir unnið að smíði þrjátíu tonna báts í atvinnuhúsnæði í Brákarey í Borgarnesi. Deila þeirra við Borgarbyggð, sem á húsnæðið, hefur sett alla þá vinnu í uppnám. Að óbreyttu eiga þau að fjarlægja bátinn út úr húsinu 1. júní næstkomandi. Þau óttast að ef báturinn sé settur út núna, þegar húðin á honum er óvarin, gæti það valdið verulegu tjóni og jafnvel orðið til þess að ekki fáist haffæraleyfi á hann. Slíkt tjón mætti meta á marga tugi milljóna. Borgarbyggð hefur ákveðið að láta rífa húsið svo hægt sé að hefjast handa við framkvæmdir við hreinsistöð sem er fyrir aftan það en nýjar lagnir eiga að koma þar sem húsið er nú. Þorsteinn Máni og María segjast hafa margt út á vinnubrögð Borgarbyggðar að setja. „Í afstöðumynd sem fylgir útboðsgögnunum með framkvæmdunum við skolpstöðina sést að rörið fer framhjá húsinu og er í tveggja og hálfs metra fjarlægð þar sem það kemur næst,“ segir hann. „Ég fæ ekki skilið af hverju þarf að rífa 1.380 fermetra hús af því að lögn eiga að fara fram hjá því.“ Þau segjast einnig afar ósátt við vinnubrögð Borgarbyggðar í þessu máli. „Ég var hérna fyrir tilviljun einn dag í október síðastliðnum þegar ég varð vör við það að hingað var kominn hópur sem ætlaði að rífa húsið en því var bjargað,“ segir María. Þau segjast ekki hafa fengið uppsagnarbréf frá bænum en hins vegar heyrt stjórnsýslumenn segja það í fjölmiðlum að þau eigi að vera komin út 1. júní næstkomandi. „Fyrir mér gildir slík uppsögn ekki en það gerir aftur á móti heiðursmannasamkomulag sem ég gerði við Pál Brynjarsson bæjarstjóra um að ég fengi alltaf sex mánaða fyrirvara.“ Þess ber að geta að þau leigðu húsið í gengum þriðja aðila svo leigusamningur milli þeirra og Borgarbyggðar var aldrei til. „Svo er alltaf verið að tala um nýsköpun og sprotafyrirtæki en svo sést hvernig forgangsröðin er í raun og veru hjá þessu sveitarfélagi þegar skolphreinsilagnir eru látnar verða til þess að ekki sé hægt að smíða bát sem mundi síðan koma sér vel fyrir samfélagið hér og auka tekjur þess.“ Þorsteinn segist helst vilja fá næði til að klára bátinn í þessu húsnæði en það gæti þurft tvö ár.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Vilhjálmur verður bæjarstjóri Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira