Útlit er fyrir að miðjumaðurinn Andrey Arshavin missi af næstu þremur leikjum Arsenal eftir að hafa meiðst lítillega í landsleik með Rússum í gærkvöldi.
Knattspyrnustjórinn Arsene Wenger hjá Arsenal mjög ósáttur með að missa Arshavin í meiðsli og telur að leikmaðurinn hefði aldrei átt að spila leikinn.
„Ég tók Arshavin af velli í leiknum á móti Manchester United vegna þess að hann fann fyrir óþægindum í nára. Af þeim sökum missti hann af fyrri leiknum með Rússum á dögunum og hefði aldrei átt að spila leikinn í gær.
Það er hægt að segja margt en það hefur ekkert upp á sig núna og leikmaðurinn mun að öllum líkindum missa af leikjunum gegn Manchester City og Wigan í ensku úrvalsdeildinni og Standard Liege í Meistaradeildinni," sagði Wenger vonsvikinn.