Ræða lán og styrki frá ESB 17. september 2009 03:30 Í talsverðan tíma hafa Íslendingar átt í viðræðum við Evrópusambandið um efnahagsaðstoð vegna efnahagsástandsins hér á landi. Aðstoð ESB verður tengd láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Á næsta ári munu íslendingar geta sótt ýmsa aðra styrki vegna þess að umsókn um aðild að ESB liggur fyrir.
Íslenskir embættismenn eiga í viðræðum við Evrópusambandið um efnahagslegan stuðning sambandsins við Ísland. Frumkvæðið kom frá ESB í október, skömmu eftir bankahrunið. Auk lánveitingar munu Íslendingar á næsta ári geta sótt um fyrirgreiðslu sem eitt þeirra ríkja sem sótt hefur um aðild að ESB. ESB hefur veitt þeim ríkjum, sem eru í nánu samstarfi við sambandið og eiga í miklum efnahagserfiðleikum svokallaðan MFA-stuðning (Macro-financial assistance). Samkvæmt upplýsingum frá sendiráði ESB á Íslandi, sem er staðsett í Noregi, hefur svokallað MFA-lán til Íslands verið í undirbúningi í nokkurn tíma. Lánveitingin þarf samþykki ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir ekki um eiginlegar samningaviðræður að ræða, enda málið að frumkvæði ESB. Það sé á svipuðum nótum og gagnvart öðrum ríkjum utan ESB sem eru í sambærilegri stöðu og Ísland. Að sögn Sveinbjörns Hannessonar, hjá sendiráði ESB, verður láni sambandsins ætlað að styðja við lánveitingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og annarra aðildarríkja ESB til Íslands. Sveinbjörn gat ekki tjáð sig um fjárhæðir en sagði ekki „um að ræða sambærilega upphæð og Ungverjaland fékk". Ungverjaland fékk 6,5 milljarða evra lán frá ESB til viðbótar 12,5 milljarða evra láni frá AGS. Hins vegar er svokallaður IPA-stuðningur (Instrument for Pre-accession Assistance) veittur ríkjum sem sótt hafa um aðild að sambandinu, eins og Ísland gerði í sumar. Þeim styrkjum er ætlað að renna til uppbyggingar á innviðum samfélagsins og auðvelda aðlögun að sambandinu. Sambærileg aðstoð eru dreifbýlisstyrkir sem aðildarríkin njóta. Að sögn Sveinbjörns Hannessonar verður ekki fyllilega ljóst fyrr en á árinu 2010 um hvaða IPA-aðstoð Íslendingar geta sótt. Olli Rehn, stækkunarstjóri ESB, flutti erindi í Háskóla Íslands í síðustu viku og nefndi þar að samningaviðræður um MFA-lán til Íslands væru í gangi. „Það verður stuðningur frá ESB við Ísland," sagði Rehn. Rehn vísaði til stuðnings ESB við Serbíu. Serbar fengu 18 milljarða króna stuðning í tengslum við aðstoð AGS við landið. Skrifstofa framkvæmdastjóra efnahagsmála ESB gat ekki svarað spurningum um málið, að svo stöddu.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira