Innlent

Fylgjast grannt með flensunni

Haraldur Briem sóttvarnalæknir.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir.

Landlæknisembættið og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgjast grannt með framvindu mála og eru í nánu sambandi við erlendar stofnanir beggja vegna Atlantshafsins. Ekki er útilokað að veiran geti borist hingað með ferðamönnum, en sóttvarnalæknir tekur fram að þau inflúensulyf, sem til eru í landinu, séu virk gegn svínainflúensunni, en framleiðsla bóluefnis til varnar gegn henni er á bryjunarstigi. Embættin hafa ekki enn mælt með ferðatakmörkunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×