Bjarni: Markið var kolólöglegt Smári Jökull Jónsson skrifar 9. júlí 2009 21:39 Stjörnumenn fagna sigri fyrr í sumar. Mynd/Valli
Bjarni Jóhannsson var ósáttur í leikslok eftir að hans menn lágu fyrir Fjölni í Grafarvogi. Bjarni vildi meina að annað mark Fjölnis hefði verið kolólöglegt og sagði það algjöran vendipunkt í leiknum. "Markið er kolólöglegt. Það er hendi og þetta pirraði mína menn, við náðum ekki að halda nógu vel haus. Ég tel það vendipunkt leiksins og þetta bitnaði klárlega á okkur," sagði Bjarni í samtali við Vísi í leikslok. "Okkar leikur var ekki nógu góður í fyrri hálfleik. Við urðum að gera töluverðar breytingar á liðinu fyrir leikinn og síðan meiðist Bjarki strax í upphafi leiksins. Mér fannst þetta því riðlast aðeins hjá okkur. Það var hræðilegt að fá á sig þetta mark sem var afar klaufalegt af okkar hálfu en við mætum síðan dýrvitlausir í síðari hálfleik og Maggi bætti vel fyrir sín mistök í fyrri hálfleik með markinu. En síðan kálaði þetta annað mark leiknum að mínu mati," bætti Bjarni við. Í Stjörnuliðið vantaði þrjá mikilvæga menn. Þeirra besti maður í sumar Steinþór Freyr Þorsteinsson var meiddur ásamt markahæsta manni deildarinnar Arnari Má Björgvinssyni. Þá var Tryggvi Bjarnason einnig meiddur. Bjarni sagði að þetta hefði auðvitað sett strik í reikninginn fyrir ungt og óreynt Stjörnuliðið. "Það kemur í ljós eftir helgi hvernig er með meiðslin hjá þessum mönnum en það tekur auðvitað smá tíma að smyrja algjörlega reynslulausa menn inn aftur. Mér fannst þeir standa vaktina ágætlega í kvöld og þeir eru reynslunni ríkari. Við skulum bara vona að það verði gott veður um helgina og þeir meiddu teygi vel á og svo sjáum við til á mánudaginn," sagði þjálfari Stjörnunnar Bjarni Jóhannsson í samtali við Vísi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Sjá meira