Hlýtur að vera misskilningur 21. september 2009 03:30 Nýr stjórnarformaður Strætó í forgrunni með strætisvagna í bak
Velferðarsviði Reykjavíkurborgar er gert að skera niður rekstrarkostnað sinn um 5,76 prósent á þessu starfsári samkvæmt áætlun sem borgarstjóri lagði fram í borgarráði á fimmtudag. Bundinn kostnaður við fjárhagsaðstoð og leigubætur, sem áætlað er að verði um 3,2 milljarðar á árinu, er þar hins vegar ekki undanskilinn. Þetta þýðir að Velferðarsvið er í raun krafið um meiri hagræðingu í sínum daglega rekstri en Leikskóla- og Mennta- og Menningarsviði, sem einnig eiga að skera niður um 5,76 prósent. Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, segir að hún eigi eftir að fá í hendurnar rýningu á áætluninni frá fjármálastjóra sviðsins, en eins og áætlunin líti út núna hafi hún af henni nokkrar áhyggjur. „Ég trúi því eiginlega ekki að það sé gerð krafa um hagræðingu í fjárhagsaðstoð, heimildargreiðslum og húsaleigubótum sem eru þættir sem við ráðum ekkert við," segir Jórunn. „Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur. Það er engin hætta á því að ætlunin sé sú að sverfa svo nærri velferðarsviði að við getum ekki veitt okkar lögbundnu þjónustu." Jórunn segir eðlilegt að gera kröfu um hagræðingu á velferðarsviði eins og á öðrum sviðum en tæpast geti verið að velferðarsvið eigi að skera niður meira en hin fjölskyldusviðin í sínum daglega rekstri. Aukafundur verður haldinn í velferðarráði í dag og býst Jórunn við því að málið verði tekið þar fyrir og kallað eftir leiðréttingu. Stella Kr. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, segist eiga eftir að fara betur yfir málið og áætlanir sviðsins, meðal annars um fjárhagsaðstoð á þessu ári, en niðurskurðaráætlun borgarstjóra valdi henni þó ekki miklum áhyggjum hvað þetta varðar. Hún bendir á að bótagreiðslur og fjárhagsaðstoð lúti öðrum lögmálum en aðrir rekstrarliðir, að því leyti að umframfjárveitingum sé skilað aftur í borgarsjóð en þær ekki nýttar í annað, og að umframfjárþörf sé mætt af borgarsjóði lögum samkvæmt. Því sé ekki hætta á að sviðið geti ekki sinnt þessu hlutverki sínu vegna niðurskurðar. stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira