Forsetinn á heimsþingi Bills Clintons 21. september 2009 13:38 Mynd/GVA
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur í vikunni erindi í pallborðsumræðum á heimsþingi Clinton stofnunarinnar, Clinton Global Initiative, þar sem fjallað verður um hvernig fjármálamarkaðir geta þjónað almannaheill á heimsvísu. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að Ólafur Ragnar mun taka þátt í umræðum á þremur alþjóðlegum málþingum í New York og Washington í vikunni. Þá mun hann eiga fundi með þjóðarleiðtogum, sérfræðingum og áhrifafólki í alþjóðamálum, orkumálum, loftslagsmálum og á fleiri sviðum. Heimsþingið var stofnað af Bill Clinton þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna og sækja það þjóðarleiðtogar, vísindamenn, fjölmiðlafólk, fulltrúar almannasamtaka og áhrifamenn á fleiri sviðum. Ólafur Ragnar mun flytja lokaræðuna á alþjóðlegu málþingi Louise Blouin stofnunarinnar um lærdómana sem draga má af fjármálakreppunni og hvernig hægt er að byggja upp hagsæld að nýju á traustan og öruggan hátt. Þá verður hann meðal málflytjenda á leiðtogafundi bandaríska samkeppnisráðsins um orkumál. Þar verður fjallað um hvernig nýting hreinna og sjálfbærra orkugjafa getur aukið samkeppnishæfni þjóða. Forsetinn mun meðal annars fjalla um að reynsla Íslendinga sé efniviður í samvinnu milli þjóða á tæknisviði og saga þjóðarinnar sýni hvernig hægt er að byggja upp orkuöryggi og auka um leið samkeppnishæfni efnahagslífsins. Meðal þátttakenda á leiðtogafundinum verða ýmsir forystumenn úr bandarískum þjóðmálum og viðskiptalífi. Þá mun Dorrit Moussaieff forsetafrú sækja málþing um einhverfu og aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur. Málþingið er haldið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og er forsetafrúin meðal skipuleggjenda þess. Hún mun einnig, í boði Rania Jórdaníudrottningar og Wendi Murdoch, sitja umræðukvöldverð um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sjá meira