Davíð Þór: Vorum algjörir klaufar að klára þetta ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júlí 2009 19:22 Markaskorar FH, Atli Guðnason og Davíð Þór Viðarsson fagna hér marki Atla í dag. Mynd/Kristján Orri Jóhannsson
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, átti fínan leik á miðjunni í dag og kom FH-liðinu í gang á ný þegar hann jafnaði leikinn með skalla eftir hornspyrnu Tryggva Guðmundssonar. „Mér fannst við vera miklu sterkara lið í þessum leik en það er víst ekki nóg í fótbolta til að fá þrjú stig. Maður verður að nýta færin sín og skora fleiri mörk en andstæðingurinn sem við gerðum ekki í þessum leik," segir Davíð Þór. „Ég veit ekki hversu mörg færi við áttum í þessum leik. Við erum 1-0 undir í hálfleik en fáum allavega fimm til sex mjög góð færi í fyrri hálfleik," sagði Davíð sem var svekktur með jöfnunarmark Keflavíkurliðsins. „Við misstum boltann á miðjunni og þeir fara upp í ágætis upphlaup og skora. Þetta er algjört kæruleysi hjá okkur því við eigum að vera með það reynslumikið lið að vita að við eigum bara að negla boltanum fram í þessari stöðu," segir Davíð. Davíð Þór tók ekki vítið sem FH fékk í stöðunni 2-1 heldur Matthías Vilhjálmsson sem lét markvörð Keflavíkur verja frá sér. „Það kom alveg til greina að ég tæki vítið. Það er annaðhvort ég eða Matti sem tökum vítin þegar Tryggvi er ekki inn á vellinum. Matti vildi bara taka það en hann var óheppinn því hann er góð vítaskytta. Þetta getur gerst í þessum bransa," segir Davíð. FH-liðið átti í nokkrum vandræðum með Færeyinginn Símun Samuelsen og Davíð viðurkennir það. „Símun er góður leikmaður. Hann er duglegur að finna sér pláss inn á miðjunni milli varnar og miðju og það var erfitt að ráða við hann. Hann var góður í þessum leik og Keflavík er með mjög gott lið en við vorum samt algjörir klaufar að klára þetta ekki í dag," segir Davíð en það er engin ástæða til að örvænta enda er staða liðsins mjög góð í Pepsi-deildinni þar sem liðið er með þrettán stiga forustu á næsta lið. „Við erum í fínni stöðu en viljum hvern einasta leik sem við förum í. Núna erum við án sigurs í tveimur leikjum í röð og við erum hvorki vanir því eða ánægðir með það," sagði Davíð að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Fleiri fréttir „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ Sjá meira