Beint Portúgalsflug varð að 20 tíma kvöl 18. september 2009 04:00 Allt lék í lyndi hjá Skarphéðni Sigtryggssyni og fjölskyldu úti í Portúgal en ferðirnar til og frá landinu voru mun erfiðari en þau ætluðu. Mynd/Úr Einkasafni „
Þetta var eiginlega fullmikið fyrir okkur,“ segir Skarphéðinn Sigtryggsson sem keypti Portúgalsferð fyrir fjölskylduna með beinu flugi frá Akureyri en þurfti samt að fljúga um Keflavík og millilenda í Berlín á heimleiðinni. „Ég er sjálfur kvíðasjúklingur, konan er öryrki og með mikla slitgigt í hnjám og drengurinn er einhverfur og flogaveikur svo okkur leist mjög vel á að geta farið í beinu flugi héðan frá Akureyri. Við keyptum ferðina með góðum fyrirvara en um það bil tveimur vikum fyrir brottför heyrðum við það af tilviljun úti í bæ að hætt hefði verið að fljúga frá Akureyri og farið væri frá Keflavík í staðinn,“ segir Skarphéðinn sem, ásamt eiginkonu sinni og sextán ára syni, keypti tveggja vikna ferð með Úrvali-Útsýn til Portúgal í beinu flugi frá Akureyri í sumar. Vegna fyrrgreindra aðstæðna fjölskyldunnar var úr vöndu að ráða. „Við hefðum sennilega hætt við ferðina en dóttir okkar, sem býr í Danmörku, var búin að borga ferð til þess að hitta okkur í Portúgal þannig að við létum okkur hafa það og keyrðum til Keflavíkur,“ lýsir Skarphéðinn sem tekur fram að Úrval-Útsýn hafi þó boðist til að greiða flug fyrir fjölskylduna til og frá Akureyri. Að sögn Skarphéðins var dvölin í Portúgal ánægjuleg. En þar ytra bárust næstu ótíðindi. „Þá fréttum við það niður á Íslendingabar að það yrði ekki beint flug frá Portúgal til Íslands. Dvölin var svo lengd um eina nótt og millilent í Berlín þar sem var sjö tíma bið,“ segir Skarphéðinn sem kveður ferðalagið frá því hótelið var yfirgefið í Portúgal og þar til komið var til Íslands hafa tekið um tuttugu klukkutíma. „Við vorum komin á hótel í Reykjavík um miðja nótt og orðin sár enda var þetta alls ekki ferðin sem við keyptum,“ segir Skarphéðinn sem skrifaði Úrvali-Útsýn bréf eftir heimkomuna. „Ég tíundaði það í bréfinu að fólk er misjafnlega í stakk búið til að takast á við svona ferðalög. Inni í þessu er líka einn dagur í vinnutap fyrir utan að láta fara svona með sig. Ég setti ekki fram ákveðnar kröfur en fyndist það ekki mikið þótt við fengjum helmings afslátt af ferðinni. En allt sem ég fékk var mjög stuttaralegt bréf um að þeir myndu borga fyrir okkur matinn í Berlín ef við framvísuðum reikningi,“ segir Skarphéðinn óánægður. Tinna Guðmundsdóttir hjá Úrvali-Útsýn segir ferðaskrifstofuna hafa verið í rétti til að gera óhjákvæmilega breytingarnar á fluginu. Allir hafi átt þess kost að hætta við ferðina. „Ferðaskrifstofan spyr ekki um heilsufar fólks og við þekkjum ekki aðstæður allra okkar farþega,“ segir Tinna sem kveður ekki ætlunina að bæta fjölskyldunni frekar upp óþægindin. „Við bendum fólki á að leita til Neytendasamtakanna ef það er ósátt við okkar niðurstöðu.“
Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Sjá meira