Samgöngumiðstöð í óvissu 17. september 2009 19:10
Áform um samgöngumiðstöð í Vatnsmýri eru í uppnámi eftir að Reykjavíkurborg þrengdi mjög þá lóð sem henni er ætluð norðan Loftleiðahótels. Verkefnisstjórn efast um að samgöngumiðstöðin rúmist á lóðinni.Samgönguráðherrar og borgarstjórar síðustu fimm ára hafa verið að undirbúa samgöngumiðstöð og þótt borgin hafi fyrir einu og hálfu ári lofað að klára skipulagsvinnu innan hundrað daga eru þau mál enn óskýr.Ólafur Sveinsson, verkefnisstjóri samgöngumiðstöðvar, segir að það séu í raun aðeins örfáir dagar frá því endanleg lega Hlíðarfótar var ákveðin en framkvæmdir eru þegar hafnar.Já, vinnuvélar eru byrjaðar að grafa fyrir Hlíðarfæti, milli Hringbrautar og Loftleiðahótels, en bara alls ekki á þeim stað sem fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Til að laga skipulagið að verðlaunatillögu, sem gerir ráð fyrir að flugvöllurinn hverfi úr Vatnsmýri, er borgin nefnilega búin að breyta legu götunnar og þrengja svo að samgöngumiðstöðinni að verkefnisstjórn hennar efast nú um að hún komist þar fyrir. Ólafur segir að lögun lóðarinnar, stærð hennar og takmarkanir á nýtingu hennar, geri það að verkum að verkefnisstjórnin vilji skoða aðra valkosti.Það er auðheyrt að verkefnisstjórnin er ósátt við þá breytingu sem borgin gerði. Spurður hvort hún hafi verið gerð í samráði við verkefnisstjórnina segir Ólafur að hún ráði engu um það, borgin sé með skipulagsvaldið. "En þetta voru ekki okkar óskir að þetta yrði svona, þannig að það sé ljóst," segir Ólafur.En þýðir þetta að hugmynd um alhliða samgöngumiðstöð sé úr sögunni? Um það vill Ólafur ekkert segja á þessari stundu.Samgöngumiðstöðin er á lista ríkisstjórnarinnar frá því í vor yfir þau verkefni sem átti að drífa í gang vegna efnahagsástandsins. Fátt bendir til þess að fyrstu hamarshöggin heyrist á næstunni.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði